Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Hátíðarguðsþjónusta á Hvítasunnudagmaí 16, 2024 - 9:14 f.h.
- Guðsþjónusta og messukaffi 09/05/24maí 6, 2024 - 9:45 f.h.
- Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.11:00, 5/5/24maí 3, 2024 - 9:31 e.h.
- Upplýsingar vegna fermingafræðslu og ferminga vorið 2025apríl 29, 2024 - 9:14 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurapríl 28, 2024 - 9:11 e.h.
Helgihald um jól og áramót
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirAðfangadagur, 24. desember, kl. 15:00. Beðið eftir jólunum, helgistund með sunnudagaskólaívafi. Sunnudagaskólakennarar og sóknarprestur annast stundina.
Aðfangadagur, 24. desember, kl. 18:00. Hátíðarguðsþjónusta. Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari. Einsöngur: Þórunn Elín Pétursdóttir og einleikur á flautu: Hafdís Vigfúsdóttir. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Hátíðartónlist flutt frá kl. 17:30.
Jóladagur, 25. desember, kl.14:00. Hátíðarguðsþjónusta, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Annar jóladagur, 26. desember, kl. 11:00. Kópavogskirkjuganga. Stutt helgistund í kirkjunni og að henni lokinni verður boðið upp á í samvinnu við Sögufélag Kópavogs hálftíma göngu um Kársnes undir stjórn Frímanns Inga Helgasonar. Á eftir verður boðið upp á “gönguvænar” veitingar í safnaðarheimilinu Borgum.
Gamlársdagur, 31. desember, kl. 18:00. Guðsþjónusta með óhefbundnu sniði. Kristín Stefánsdóttir og félagar sjá um tónlistarflutning.
Nýjársdagur, 1. janúar, kl. 14:00. Hátíðarguðsþjónusta. Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands flytur hugleiðingu. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Í öllum guðsþjónustum prédikar og þjónar sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, nema annað sé tekið fram.
Guðsþjónusta 21. desember kl. 11:00
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 21. desember n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju kl. 11:00 í kirkjunni.
“Mál dagsins” 16. desember fellur niður vegna veðurs
/in Fréttir/by Lilja Katrín Gunnarsdóttir“Mál dagsins” fellur niður í dag, þriðjudaginn 16. desember vegna veðurs. Starfið hefst aftur þriðjudagin 13. janúar, 2015 kl. 14:30 eftir jólafrí.
Opið hús hjá Birtu – Landssamtökum
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirBirta – Landssamtök standa fyrir opnu húsi þriðjudaginn 16. desember kl 20:00 í Grafarvogskirkju.
Gestir kvöldsins verða tveir, en það eru þær:
Samveran er öllum opin og þeim að kostnaðarlausu.
Mozart við kertaljós
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirKópavogskirkju, laugardagskvöldið 20. desember kl. 21:
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í tuttugu og tvö ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Haldórsson, sellóleikari. Á dagskránni eru tvær af perlum Mozarts “Eine kleine Nachtmusik” Kv. 525 og Klarinettukvintettinn K. 581.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,”Í dag er glatt í döprum hjörtum.”
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast klukkan 21.00. Aðgangseyrir er kr.2500 og kr.1500 fyrir nemendur og eldri borgara og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.
Samvera á aðventu fyrir syrgjendur
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirGrafarvogskirkju 18. desember kl. 20.
Oft er erfitt að horfa fram til jóla þegar ástvinur hefur fallið frá. Samveran er sérstaklega hugsuð til að styðja fólk í þessum aðstæðum. Jólasálmar. Hamrahlíðarkórinn. Hugvekja: sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Minningarstund.
Kirkjugestir geta tendrað ljós og minnst þannig látinna ástvina sinna. Samveran er túlkuð á táknmál. Léttar veitingar eftir samveruna.
Landspítalinn, Þjóðkirkjan og Ný Dögun
Guðsþjónusta 3. sunnudag í aðventu
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirNæsta guðsþjónusta verður sunnudaginn 14. desember n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.
Starf fyrir 1.-4. bekk
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirStarf fyrir 1.-4. bekk verður miðvikudaginn 10. desember n.k. Eftir jólafrí hefst starfið aftur miðvikudaginn 14. janúar 2015.
Mál dagsins 16. desember n.k.
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirMál dagsins 16. desember n.k. hefst kl 14:30 með samsöng. Síðan mun börn af elstu deild leiksskólans Marbakka syngja. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund. Mál dagsins hefst aftur eftir jólafrí þriðjudaginn 13. janúar 2015.
Mál dagsins
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirMál dagsins verður þriðjudaginn 9. desember n.k. og hefst að venju kl. 14:30 með samsöng. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.