Visitasía vígslubiskups í Skálholti

Sunnudaginn 30. nóvember n.k. kl. 11:00 mun sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti prédika í messu Kópavogskirkju.  Í för með vígslubiskupi verður sr. Gísli Jónasson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi Eystra.  Fyrir altari þjóna einnig: sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.

Að lokinni messu verður messukaffi í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.

Helgihald í Kópavogskirkju á aðventu og jólum 2014

Miðvikudagur. 10. desember, kl. 20:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, „Borgum“.  Jólasöngvar Kórs Kópavogskirkju með þátttöku Kiwanisklúbbsins Dyngju.
Flytjendur: Kór Kópavogskirkju, Hafdís Vigfúsdóttir flauta, Peter Máté píanó, einsöngvarar úr röðum kórfélaga, stjórnandi Lenka Mátéová.

Þriðji sunnudagur í aðventu, 14. desember, kl. 11:00. Guðsþjónusta

Miðvikudagur 17. desember kl. 17:30 í Kópavogskirkju.  Kirkjuhlaupið í Kópavogi.  Fyrst sungnir 2 jólaálmar og hlaupið hefst kl. 17:40 með kirkjuklukknahringingu.   Á eftir hlaupi er boðið upp á hlaupavænar veitingar í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.

Fjórði sunnudagur í aðventu, 21.desember, kl. 11:00. Guðsþjónusta, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.

Aðfangadagur, 24. desember, kl. 15:00.  Beðið eftir jólunum, helgistund með sunnudagaskólaívafi.  Sunnudagaskólakennarar og sóknarprestur annast stundina.

Aðfangadagur, 24. desember, kl. 18:00.  Hátíðarguðsþjónusta.  Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar.  Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari.  Einsöngur: Þórunn Elín Pétursdóttir og einleikur á flautu: Hafdís Vigfúsdóttir. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.Hátíðartónlist flutt frá kl. 17:30.

Jóladagur, 25. desember, kl.14:00.  Hátíðarguðsþjónusta, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Jóladagur, 25. desember, kl.15:15. Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar.

Annar jóladagur, 26. desember, kl. 11:00.  Kópavogskirkjuganga. Stutt helgistund í kirkjunni og að henni lokinni verður boðið upp leiðsögn frá Frímanni Inga Helgasyni, frá Sögufélagi Kópavogs um Kársnesið.  Boðið verður upp á gönguvænar veitingar að göngu lokinni í safnaðarheimili Kópavogskirkju, „Borgum.“

Gamlársdagur, 31. desember, kl. 18:00. Guðsþjónusta með óhefbundnu sniði.  Kristín Stefánsdóttir og félagar sjá um tónlistarflutning.

Nýjársdagur, 1. janúar, kl. 14:00.  Hátíðarguðsþjónusta.  Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands flytur hugleiðingu.  Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Í öllum guðsþjónustum prédikar og  þjónar sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, nema annað sé tekið fram.

Miðvikudagur. 10. desember, kl. 20:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, „Borgum“.  Jólasöngvar Kórs Kópavogskirkju með þátttöku Kiwanisklúbbsins Esju.
Flytjendur: Kór Kópavogskirkju, Hafdís Vigfúsdóttir flauta, Peter Máté píanó, einsöngvarar úr röðum kórfélaga, stjórnandi Lenka Mátéová.

Aðfangadagur, 24. desember, kl. 15:00.  Beðið eftir jólunum, helgistund með sunnudagaskólaívafi.  Sunnudagaskólakennarar og sóknarprestur annast stundina.

Aðfangadagur, 24. desember, kl. 18:00.  Hátíðarguðsþjónusta.  Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar.  Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari.  Einsöngur: Þórunn Elín Pétursdóttir og einleikur á flautu: Hafdís Vigfúsdóttir. Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.Hátíðartónlist flutt frá kl. 17:30.

Jóladagur, 25. desember, kl.14:00.  Hátíðarguðsþjónusta, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Jóladagur, 25. desember, kl.15:15. Hátíðarguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar.

Annar jóladagur, 26. desember, kl. 11:00.  Kópavogskirkjuganga- og hlaup.  Stutt helgistund í kirkjunni og að henni lokinni verður boðið upp á 2 km göngu eða 5 km skokk um Kársnesið.  Boðið verður upp á göngu- og hlaupavænar veitingar að göngu eða hlaupi loknu í safnaðarheimili Kópavogskirkju, „Borgum.“

Gamlársdagur, 31. desember, kl. 18:00. Guðsþjónusta með óhefbundnu sniði.  Kristín Stefánsdóttir og félagar sjá um tónlistarflutning.

Nýjársdagur, 1. janúar, kl. 14:00.  Hátíðarguðsþjónusta.  Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands flytur hugleiðingu.  Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Í öllum guðsþjónustum prédikar og  þjónar sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, nema annað sé tekið fram.

Messa í Kópavogskirkju 23. nóvember n.k.

Næsta messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. nóvember n.k. kl.11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.

Í messunni verður helgaður og tekinn í notkun nýr grænn hökull, sem saumaður er af Herder Anderson, klæðskerameistara.  Hökulinn var unninn í sumar og haust.  Eftir messu verður messukaffi í safnaðarheimilinu Borgum.

Allir hjartanlega velkomnir.

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar eru á fimmtudögum frá kl.10:00-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum.

“Mál dagsins”

Næsta “Mál dagsins”  verður þriðjudaginn 18. nóvember n.k. kl. 14:30 og hefst að venju með samsöng í umsjón: Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:05 munu þau Björk Þórhallsdóttir, söngkona og Hilmar Örn Agnarsson, orgelleikari flytja tónlist.  Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og með því.  Stundinni lýkur svo kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Æskulýðsfundur

Æskulýðsfundur verður í safnaðarheimilinu Borgum þriðjudaginn 18. nóvember n.k. kl.20:00.

Vetrarfermingarfræðsla

Mánudaginn 17. nóvember n.k. fellur vetrarfermingarfræðsla niður kl.15:10 vegna starfsdags í Kársnesskóla.  Næsti vetrarfermingarfræðslutími er mánudaginn 24. nóvember n.k.

Dagur íslenskrar tungu þann 16. nóvember n.k.

Sunnudaginn 16. nóvember n.k. á degi íslenskrar tungu mun Þórður Ingi Guðjónsson, sérfræðingur á Árnastofnun flytja hugleiðingu í guðsþjónustu í Kópavogskirkju kl. 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni kl. 11:00 en flyst eftir guðsþjónustu upphaf í safnaðarheimilið Borgir.

Mál dagsins 11. nóvember 2014

Mál dagsins 11. nóvember n.k. hefst að venju með samsöng kl. 14:30.  Um kl. 15:10 heldur Aðalsteinn Sigfússon, forstöðumaður velferðarsviðs Kópavogs erindi.  Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Næstkomandi þriðjudag 4. nóvember n.k. munu fermingarbörn í Kársnessókn ganga í hús í sókninni á milli 18:00-20:00 og safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.