Helgistund í Digraneskirkju 14. júní kl. 11.00

Sameiginleg helgistund Kópavogs-, Digraness- og Hjallakirkju í Digraneskirkju sunnudaginn 14. júní kl 11.00 Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir settur sóknarprestur Kópavogskirkju leiðir stundina ásamt Sólveigu Sigríði Einarsdóttur organista Digraneskirkju.

Kaffi og kex í safnaðarheimili að lokinni stundinni.

Helgistund á sjómannadaginn 7. júní

Sameiginleg helgistund Kópavogs-, Digranes- og Hjallakirkju á sjómannadag kl. 11.00, í safnaðarheimili Kópavogskirkju Borgum. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, settur sóknarprestur flytur hugvekju og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Tónlistin ber merki sjómannadagsins og munu þeir Páll Elíasson og Hannes Sigurgeirsson leika á harmonikkur.