Upplýsingar til þeirra sem skrá sig í fermingarfræðslu í Kópavogskirkju veturinn 2026-7

Skráning mun í fyrst sinn fara fram í gegnum forritið Abler. Opnað verður fyrir skráningar fljótlega og verður það tilkynnt á heimasíðu og samfélagsmiðlum kirkjunnar.

Valið er milli: Síðsumarsnámskeiðs og Vetrarfræðslu:

Síðsumarsnámskeið

Síðsumarsnámskeiðin eru mjög vinsæl hjá okkur. Þau sem klára síðsumarsfræðsluna þurfa ekki að mæta í vikulega vetrarfermingarfræðslu. Síðsumarnámskeiðið verður 19. 20. og 21. ágúst, 2026 frá kl. 9:15-12.15 í safnaðarheimilinu Borgum.

Vetrarfermingarfræðslan

Vetrarfermingarfræðslan verður auglýst síðar en hún hefst í byrjun september og tekur mið af stundaskrá Kárnesskóla.

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp)

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp)

verða fyrir og eftir jól (nánar auglýst síðar). Aukatímar gætu orðið ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum. Það yrði auglýst síðar.

Námsgögn

Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios (Kirkjan lánar) og Kirkjulykill (Kirkjan útvegar þær).  Hægt er að fá Nýja testamentið gefins hjá Kársnessöfnuði og Sálmabókin er lánuð þegar þarf.

Messur

Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að taka með sér „Kirkjulykilinn“ og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni. Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu. Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.  Í messunum og guðsþjónustunum er beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að þau eru á helgum stað.  Beðið eru um að farsímar (snjallsímar) séu ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur, það sé slökkt á þeim. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið.

Fermingarferð

Liður í fermingarfræðslunni er dagsferð. Dagsetning tilkynnt síðar

Foreldrum og fermingarbörnum boðið til messu og fundar 23. ágúst og í janúar (tilkynnt síðar)

Messa og upplýsingafundur fyrir fermingarbörn og foreldra verður núna 23. ágúst 2026 í Kópavogskirkju kl. 11.00. Einnig verður boðið til messu og upplýsingafundar eftir áramót, í janúar 2027 kl.11:00 í Kópavogskirkju og verður dagsetning tilkynnt síðar. Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi.

Upplýsingar um fermingarfræðslu og fermingardaga í Kópavogskirkju 2026-7

Fermingardagar vorið 2027 verða sem hér segir:

Sunnudaginn 14. mars, 2027, kl. 11:00

Sunnudaginn 14. Mars 2027, kl. 13.00

Pálmasunnudag 21. mars 2027 kl.11:00

Skírdag 25. mars  2027, kl. 11:00

Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.  Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.

Tímar fermingaræfinga:

  1. apríl kl. 16.15 (fyrir þau sem fermast 14. apríl kl. 11.00)
  2. apríl kl. 17.15 (fyrir þau sem fermast 14. apríl kl. 13.00)
  3. apríl kl. 16.15 (fyrir þau sem fermast 21. apríl kl. 11.00)
  4. apríl kl. 10.00 (fyrir þau sem fermast 25. apríl kl. 11.00)

Kópavogskirkja á heimasíðu:

www.kopavogskirkja.is  Þar leitumst við að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti, sem á Facbook og Instragram.

Fermingarfræðslugjald er 26.188kr, skv. Gjaldskrá Prestafélags Íslands. Ef óskað er eftir að greiða gjaldið síðar vinsamlega sendið tölvupóst á netfagnið: kopavogskirkja@kirkjan.is

VIÐ NOTUM FORRITIÐ ABLER í SAMSKIPTUM

Allar upplýsingar varðandi safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.is og á samfélagsmiðlum kirkjunnar.

Gátlisti fyrir fermingarpróf

Postullega trúarjátningin
Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda,
fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar,
krossfestur, dáinn og grafinn,
steig niður til heljar,
reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum,
steig upp til himna,
situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs
og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trú á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra,
fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf.
Amen.

Faðir vor

Faðir vor, þú, sem ert á himnum.

Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,

verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.

Gef oss í dag vort daglegt brauð.

Og fyrirgef oss vorar skuldir

svo sem vér og fyrirgefum

vorum skuldunautum.

Eigi leið þú oss í freistni,

heldur frelsa oss frá illu.

Því að þitt er ríkið,

mátturinn og dýrðin

að eilífu. Amen.

 

 

Tvöfalda kærleiksboðið

“þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og af öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.”

Vertu, Guð faðir, faðir minn

Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni. Hallgrímur Pétursson

Gullna reglan

Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.

Boðorðin tíu

1. Ég er Drottinn Guð þinn, þú skalt ekki aðra guði hafa.

2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.

3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.

4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.

5. Þú skalt ekki morð fremja.

6. Þú skalt ekki drýgja hór.

7. Þú skalt ekki stela.

8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.

10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu né nokkuð það sem náungi þinn á.