„Þessi fallegi dagur“ – Hugleiðing eftir sr. Sigurð Arnarson, sóknarprest í Kópavogskirkju

Sólin skein skært um daginn.  Laugardagur, heiðskírt og himinblámi.  Ég og nokkur barnanna á leið á skíði.  Við sátum í bílnum og í fjarska heyrðust tónar og tal úr útvarpinu. 

Mikið að gerjast, skrítnir og ögrandi tímar.  Prédikun morgundagsins var ekki komin á blað en að flögra einhvern veginn í huga og hjarta. Prédikanir, hugvekjur og hugleiðingar taka stundum tíma að gerjast og koma eftir mismunandi brautum eða leiðum til manns.  Daginn áður hafði verið boðað samkomubann á landinu vegna Covid 19 og umfjöllunarefni guðspjallsins, sem átti að prédika út frá var: “Illir andar”. 

Víða í Biblíunn er fjallað um illa anda, sem herja á lífið.  Sjúkdóma og kvilla svo dæmi séu nefnd. Ég las einhvers staðar í prédikun um þetta guðspjall úr Lúkasi um illa anda að ef sett væri orðasambandið “neikvæðar hugsanir” inn í staðinn fyrir orðið “illur andi þá yrði þetta: “Enginn rekur út neikvæðar, illar hugsanir, með neikvæðum illum hugsunum.”  Ég get ekki skipað einum né neinum að vera til dæmis: hamingjusamur eða hamingjusöm.  Tuð, taut, þras, neikvæðni og illgirni ráða stundum för.  Hjálpar það á lífsgöngunni?  Eru það blindgötur?

Guðs orð boðar: trú, von og kærleika. Boðskapur Guðs er ekki bara til sýnis og aðdáunar

Fá illir andar að ráða ferðinni um of í daglega lífinu? Hvað dugar gegn þeim? Hvað dugar gegn samskitpamáta sem: særir, skemmir og eyðileggur?

Guð er með okkur, yfir og undir og allt um kring með eilífri blessun sinni segir í bæn, sem mörgum var kennd oftar en ekki af kynslóðum, sem ólu okkur upp.

Nýlega var frumsýnt verkið “Bubbi – Níu líf” á sviði Borgarleikhúsins. Í kynningu á verkinu segir meðal annars: 

“Bubbi Morthens er samofin þjóðarsálinni í öllum sínum birtingarmyndum. Skoðannaglaði gasprarinn, skrifblinda ljóðskáldið, fíkillinn, sem reis upp, kvennamaðurinn og sá sem elskar aðeins eina konu. Kúbverjinn og Hollywoodvíkingurinn, veiðimaðurinn, friðarsinninn og boxarinn. Sögur Bubba Morthens eru sögur okkar allra: sögur Íslands. En hver er hann í raun og veru? Og hver erum við? (sicklecelltrustjamaica.com)

Það eru átta leikarar, sem leika Bubba í sýningunni á mismunandi lífsskeiðum hans og þegar ég var deginum heiðskíra að keyra upp í Bláfjöll til að fara á skíði þá hækkaði ég í útvarpinu.  Það var verið að tala við Bubba. Í lok viðtalsins, var hann beðinn um ráð á skrítnum tímum.  Hann sagði eitthvað á þessa leið:

“Lífið og dauðinn eru par. Við eigum ekki að vera hrædd. Það er rosa vondur “díll” að láta óttan ná tökum á sér. Hann tekur rökhyggjuna, lífsgæðin, augnablikið og kærleikann. Höldum í kærleikann og fólkið okkar. Finnum styrkinn í því að óttast ekki, við þurfum ekki að óttast. Af hverju að kvíða? Til hvers? Verum í augnablikinu, það kemur ekki til baka. Verum þolinmóði, mild og full af kærleika. Hvað er þessi sól, sem nú í dag er að skína á okkur annað en vitnisburður um það mikla undur, sem lífið er?”

Þegar þessari þrumuræðu Bubba var lokið heyrðist útvarpsmaðurinn segja orð, sem ekki er mikið notað á ljósvakamiðlum samtímans. Hvað haldið þið að hann hafi sagt? Amen en orðið þýðir: svo skal verða. Og á eftir ameninu var leikið kærleiksríka lagið hans Bubba: “Þessi fallegi dagur”.  En þar segir meðal annars:

 “Veit ekki hvað vakti mig

vill liggja um stund.

Togar í mig tær birtan

lýsir mína lund.

Þessi fallegi dagur.

Þessi fallegi dagur.”

Jesús Kristur er enn á ferð á meðal okkar rétt eins og áður.  Hann nemur staðar, hlustar, réttir út hönd, líknar og huggar. 

“Sælir eru þeir sem heyra hans orð og varðveita það.”

Í laginu “Kveðja” yrkir Bubbi meðal annars:

“Drottinn minn faðir lífsins ljóss

lát náð þína skína svo blíða.

Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós

tak burt minn myrka kvíða.

Faðir minn láttu lífsins sól

lýsa upp sorgmætt hjarta.

Hjá þér ég finn frið og skjól.

Láttu svo ljósið þitt bjarta

vekja hann með sól að morgni

vekja hann með sól að morgni.

Drottinn minn réttu sorgmæddri sál

svala líknarhönd.

Svo vöknum við með sól að morgni

svo vöknum við með sól að morgni.”

Amen.

Hádegishljómur í kirkjuklukkum Kópavogskirkju

Hádegishljómur verður í kirkjuklukkum landsins og sameiginleg bænastund hvern dag. Um er að ræða bænastund í kirkjum landsins kl. 12.00 á hádegi hvern dag. Kirkjuklukkum verður hringt í þrjár mínútur, í kirkjum landsins kl. 12.00 á hádegi hvern dag meðan á samkomubanni stendur. Síðan hefst bænastund.
Kirkjuklukkurnar kalla fólk til samlíðunar og ábyrgðar. Þær kalla okkur inn til guðsþjónustu og senda okkur út til guðsþjónustu. Á tímum þegar ekki er hægt að fjölmenna í kirkjum landsins, þá er boðskapur klukknanna enn sá sami að við erum bræður og systur og tilheyrum sömu fjölskyldu og berum ábyrgð sem slík.
Kópavogskirkja tekur þátt í þessu verkefni.

Leyfi sóknarprests

Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur verður í leyfi frá og með 17. mars til 15. ágúst , 2020. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir mun leysa hann af, netfang Sjafnar er sjofnjo@simnet.is.

Samkomubann

Kópavogskirkja verður opin á skrifstofutíma, virka daga frá kl. 9:15-13:00 eins og verið hefur.

Kapellan í safnaðarheimilinu Borgum og kirkjan eru opin eftir samkomulagi eins og verið hefur.

Fólki er velkomið að eiga þar sína stund með Guði eða fá fyrirbæn, sé þess óskað.

Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir settu sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni verða á vaktinni til að sinna sálgæslu, bæði einstaklingsviðtölum og viðtölum í gegn um síma. Best er að panta viðtal eða símtal með því að hringja í síma 554 1898 á skrifstofutíma eða senda tölvupóst á: sjofnjo@simnet.is eða asta.agustsdottir@kirkjan.is

Hefðbundið helgihald og safnaðarstarf fellur niður á meðan samkomubann ríkir. Kirkjan mun verða opin á guðsþjónustutíma milli kl. 11.00 og 12.00 á sunnudögum, þar sem unnt er að eiga notalega stund. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir mun leiða bænastund einnig mun Lenka Mátéová, kantor kirkjunnar sjá um tónlistarflutning. Við biðjum kirkjugesti að virða tilmæli Landlæknis um tveggja metra millibil milli kirkjugesta.

Fermingar vorsins færast til 20. og 27. september n.k. kl. 11:00.

Helgistund 15. mars kl.11:00

Helgistund verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 15. mars kl. 11:00. Hugleiðing, orgeltónlist og fyrirbænir. Sunnudagskólinn fellur niður.

Fermingar vorið 2020 færast fram til haustins 2020

Fermingar vorsins 2020 færast vegna samkomubanns til 20. og 27. september næstkomandi kl. 11:00 í Kópavogskirkju.

Fréttatilkynning frá biskupi Íslands

https://kirkjan.is/frettir/frett/2020/03/13/Frettatilkynning-vegna-COVID-19-veirunnar/?fbclid=IwAR0RI1Ij87hx2aWTMGyYzOANUFupvHOJ02xnWFdsKcu5aH0IoKnTBUT9YG0

Fréttatilkynning vegna COVID-19 veirunnar

Messuhald og fermingar falla niður í vor vegna samkomubanns.

Í samhljóðan við ákvörðun stjórnvalda sem kynnt var á upplýsingafundi forsætisráðherra rétt í þessu um samkomubann vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur biskup Íslands sent út eftirfarandi tilkynningu.

Allt messuhald og vorfermingar falla niður í Þjóðkirkjunni. Ákvörðunin er tekin með almannaheill í húfi og gildir á meðan samkomubann er í gildi.

Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær farið verður af stað aftur með hefðbundið starf.

Ákvörðun biskups Íslands verður endurskoðuð í samhengi við frekari ákvarðanir stjórnvalda.

Hins vegar verður streymt frá messuhaldi á netinu þann tíma sem almennt messuhald fellur niður.

Prestar landsins halda áfram að gegna mikilvægri sálgæsluþjónustu með öllum þeim varúðarsjónarmiðum sem landlæknir hefur gefið út.
Boð þess efnis fóru frá biskupi Íslands út til presta rétt í þessu.

Ljóst er að þessi ákvörðun setur þann einstaka viðburð sem ferming er hverjum einstaklingi og fjölskyldu hans í erfiða stöðu. Fermingardagur er tímamótaviðburður í lífi einstaklinga – um leið er dagurinn oft mikið ættar- og vinamót. Þetta er því þung ákvörðun að taka, en um leið afar mikilvæg og tekin með velferð fólks í huga.

Framundan er mikil áskorun fyrir íslenskt samfélag að takast á við þennan vágest sem COVID-19 er. Þar mun fullur sigur vinnast með samtakamætti, samheldni og ábyrgð – trú, von og kærleika.

Sem stendur er gert ráð fyrir sumarfermingum og haustfermingum. Allar nánari útfærslur verða gerðar í samráði presta og safnaða. Við hvetjum því alla að hafa samband við sinn prest eða kirkju varðandi framhaldið.

Næstu dagar munu einkennast af snörum vendingum, nýjum upplýsingum og hröðum skiptingum. Það er því afar mikilvægt að fylgjast vel með og samtaka að fylgja fyrirmælum stjórnvalda.

Upplýsingar frá Þjóðkirkjunni munu birtast á kirkjan.is – Facebook og Twitter.

Biskup Íslands mun ávarpa þjóðina í útvarpsmessu á sunnudag. Að þessu sinni verður útvarpsmessan frá Reynivöllum í Kjós þar sem sr. Arna Grétarsdóttir þjónar.

Vegna ferminga vorið 2020

Kópavogi 11. mars, 2020

Kæru foreldrar og fermingarbörn vorsins 2020:

Umræðan um aðgerðir við Corona veirunni hefur ekki farið fram hjá neinu okkar undanfarið. Meðan samkomubann er ekki í gildi  er stefnt að því að ferma á áður auglýstum dögum í vor í Kópavogskirkju og æskulýðsfundir yrðu á fimmtudagskvöldum kl. 20:00-21:30. til og meðl 2. apríl n.k. Altarisgöngur yrðu svo síðar. Ef einhverjir kjósa að hætta við fermingu nú í vor þá finnum við að sjálfsögðu annan tíma, sem henntar.  Þau sem hefðu hug á  að breyta bókunum á sal í safnaðarheimilinu endilega hafið þá beint samband við Ástu, djákna.

Ef yfirvöld setja á samkomubann falla allar fermingar vorsins sjálfkrafa niður. Ef svo fer bjóðum við þá upp á að ferma í Kópavogskirkju 20. og 27. september í haust kl. 11:00. Skráningar í þær fermingar hefjast ekki nema þörf verði á en þá verða þær með sama sniði og síðast.

Bestu kveðjur,

Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni, Kópavogskirkju

Guðsþjónusta 15. mars

Guðsþjónusta verður 15. mars n.k. kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.

Mál dagsins

Mál dagsins (félgsstarf eldra fólks í Kársnessöfnuði) fellur niður frá og með þriðjudeginum 10. mars, 2020 og til þess tíma er varúðarráðstafanir Kópavogsbæjar og elli- og hjúkrunarheimila vegna Covid19 standa yfir.