Mál dagsins – Sigvaldi Kaldalóns

Mál dagsins hefst að venju kl. 14:30 þann 29. október n.k. með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 heldur dr. Gunnlaugur A. Jónsson erindi um afa sinn Sigvalda Kaldalóns.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 28. október kl. 11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 28. október kl.11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðstprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.

Erkibiskup evangelísku lúthersku kirkjunnar í Finnlandi prédikar í Kópavogskirkj

Sunnudaginn 21. október kl.11:00 mun dr. Tapio Luoma prédika í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir velkomnir

Unglingaguðsþjónusta sunnudagskvöldið 14. október kl. 20 í Kópavogskirkju

Hjalla-, Digranes- og Kópavogskirkja standa að unglingaguðsþjónustu í Kópavogskirkju sunnudagskvöldið 14. október n.k. kl. 20:00.  Unglingar úr æskulýðsstarfi Kópavogskirkju sýna „Týnda soninn“, lesa ritningarlestra og leiða bænir.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.  Sr. Sigurður Arnarson flytur hugleiðingu.  Allir hjartanlega velkomnir.

Heimsókn frá Uganda

Sunnudaginn 14. október kl. 11:00 munu þau Douglas og Thrudy frá Uganda segja frá starfi Hjálparstarfs kirkjunnar í Uganda.  Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Allir hjartanlega velkomnir.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 7. október

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 7. október n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Sunnudagaskólinn tekur þátt í stundinni og félagar úr Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Starf fyrir börn í 1-2 bekk

Vikulega er starf fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Fyrirbænastundir á þriðjudögum kl. 13:45 í safnaðarheimilinu Borgum

Fyrirbænastundir eru á þriðjudögum kl. 13:45 í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 2. október

Mál dagsins verður að venju þriðjudaginn 2.okótber frá kl. 14:30-16:00.  Stundin hefst með samsöng frá kl. 14:30-15:10 undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 segir Gunnar Gylfason frá starfi KSÍ.  Kaffi drukkið kl. 15:30 og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00.  Allir hjartanlega velkomnir.