Hátíðarguðsþjónusta á Nýjársdag

Hátíðarguðsþjónusta verður kl.14:00 á Nýjársdag.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar verður flutt.

Aftansöngur á gamlársdag. Dr. Karl Sigurbjörnsson, prédikar.

Aftansöngur verður í Kópavogskirkju á gamlársdag kl.18:00.  Dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar flutt.

Hátíðarguðsþjónusta á jóladag

Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag kl.14:00 í Kópavogskirkju.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið.

Aftansöngur á aðfangadag kl. 18:00

Aftansöngur verður í Kópavogskirkju á aðfangadag, 24. desember n.k. kl. 18:00.  Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar og sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur þjónar fyrir altari.  Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Tónlist verður flutt í kirkjunni frá kl. 17:30.  Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Beðið eftir jólunum, fjölskyldustund á aðfangadag kl. 15:00

Fjölskyldustund í Kópavogskirkju kl. 15:00 á aðfangadag.  Jólaguðspjallið og jólasálmar sungnir.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 18. desember

Guðsþjónusta verður 18. desember n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Kirkjuhlaup í Kópavogi

Kirkjuhlaup í Kópavogi verður miðvikudaginn 14. desember n.k. kl. 17:30 frá Hjallakirkju.  Sungin verður jólasálmur og svo lagt af stað.  Hlaupið er í samvinnu við Þríkó hópinn í Breiðabliki.  Boðið er upp á 7 km eða 11 km leið á milli kirkna og kapella í Kópavogi.  Að loknu hlaupi er boðið upp á hlaupavænar veitingar í Hjallakirkju.  Ekkert þátttökugjald og allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 13. desember

Mál dagsins þann 13. desember hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:10 munu prestarnir Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Guðmundur Karl Brynjarsson segja frá nýútgefnum bókum sínum.  Kl. 15:30 verður drukkið kaffi.  Stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00.  Næsta Mál dagsins eftir jólafrí verður svo þriðjudaginn 17. janúar.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 6. desember

Mál dagsins hefst þriðjudaginn 6. desember n.k. kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:10 flytur Pétur Einarsson fyrirlestur um heimildarmyndina „Rannsaked“ og svarar fyrirspurnum.  Um kl.15:30 er drukkið kaffi.  Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Jólaball

Meðfylgjandi myndir voru teknar á jólaballi Kársnessafnaðar 4. desember.img_4137 img_4128 img_4122