Prjónahópur. Sr. Karl Sigurbjörnsson kemur í heimsókn og mun tala um handverk móður sinnar.

Prjónahópur næsta fimmtudagskvöld þann 30.mars í safnaðarheimilinu Borgum kl 19.30 – 22.00.

Sr.Karl Sigurbjörnsson kemur í heimsókn og mun tala um handverk móður sinnar, Magneu Þorkelsdóttur.

Eftir hana liggur mikið og einstaklega fallegt handverk.


Allir hjartanlega velkomnir.

Kærleikssmiðjan komin í mánaðarpásu

Kærleikssmiðjan, sem starfrækt hefur verið í safnaðarheimilinu Borgum hvern sunnudag, er nú komin í pásu til sunnudagsins 23. apríl.

Þau börn sem hafa sótt smiðjuna hafa, frá áramótum, unnið með söguna Miskunnsami Samverjinn í gegnum hin ýmsu listform: tónlist, leiklist, skúlptúragerð og nú síðast ljósmyndun. Síðasta sunnudag fengu börnin að velja sér orð til að nota sem innblástur í ljósmyndir og völdu þau orðið: Fyrirgefa.

Kennarar smiðjunnar aðstoðuðu börnin við að finna myndefni og stilla því upp og úr varð aldeilis skemmtileg myndasería. Hér fyrir neðan er hluti af seríunni en seríuna í heild sinni má skoða á uppskeruhátíð Kærleikssmiðjunnar sem haldin verður í fjölskyldumessu í Kópavogskirkju, sunnudaginn 23. apríl klukkan 11.00. Á uppskeruhátíðinni verða einnig flutt lög sem börnin hafa samið í samvinnu við kennara, skúlptúrar barnanna afhjúpaðir og hver veit nema fullorðna fólkið fái að taka virkan þátt í frumsömdu leikriti barnanna um náungakærleikann.

IMG_2211-2 IMG_2200-2 IMG_2197-2 IMG_2247-2

Fermingarmessa 2. apríl kl.11:00

Fermingarmessa verður sunnudaginn 2. apríl kl.11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Mál dagsins 28. mars

Mál dagsins verður þriðjudaginn 28. mars kl. 14:30-16:00.  Starfið hefst með samsöng undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.  Klukkan 15:10 flytur Snorri Birgisson, lögreglumaður fyrirlestur um „Mannsal“.  Klukkan 15:30 er kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Messa 26. mars kl. 11:00

Messa verður sunnudaginn 26. mars n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Fermd verða tvö börn.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir atlari.  Kór Kópavogskirkju syngur.  Kærleikssmiðja á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 19. mars

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 19. mars n.k. kl. 11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Kærleikssmiðja á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 14. mars

Mál dagsins 14. mars n.k. hefst með samsöng kl. 14:30 í safnaðarheimilinu Borgum undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Kl. 15:10 flytur Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla erindi um skólann.  Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Æskulýðsdagurinn 5. mars kl. 11:00 í Kópavogskirkju

Á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar verður barna- og fjölskyldusamvera í Kópavogskirkju kl. 11:00.   Félagar úr Skólakór Kársnes syngja og félagar úr Kærleikssmiðju Kópavogskirkju taka einnig þátt.  Allir hjartanlega velkomnir.