Barna og fjölskylduguðsþjónusta 1. október 2023

Á sunnudaginn kemur, þann 1. október kl. 11.00, verður barna og fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju.  Sunnudagaskólinn, skólakórar Kársness og Kópavogskirkja leiða þar saman hesta sína í guðsþjónustu fyrir allar kynslóðirnar.

Guðsþjónusta 17/09/23

Guðsþjónusta verður við Kópavogskirkju á sunnudaginn kl. 11.00. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja, Elísa Elíasdóttir er organisti og sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Verum velkomin til guðsþjónustu á sunnudag.

Vetrarfermingarfræðslan hefst nú miðvikudaginn 13. september í Borgum safnaðarheimili. Þau tilvonandi fermingarbörn sem ekki völdu að fara í síðsumarsfræðsluna, munu sækja vetrarfermingarfræðsluna. Ef einhver á eftir að skrá sig þá má gera það með því að senda tölvupóst á kopavogskirkja@kirkjan.is