Messa & fundur 03/05/26
Á sunnudaginn 3. maí kl. 11.00 verður messa í Kópavogskirkju. Sérstaklega er væntanlegum fermingarbörnum næsta árs og foreldrum/forráðamönnnum þeirra boðið. Sr. Sigurður Arnarson prédikar, og sr. Grétar Halldór Gunnarsson og Ásta Ágústsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Elísu Elíasdóttur sem spilar á orgel. Eftir guðsþjónustu verður upplýsingarfundur í kirkjunni fyrir þau sem hafa hug á að fermast á næsta ári.






















