Fermingarfræðsla og fermingar vorið 2026 í Kársnessókn
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonFermingarfræðsla og fermingar vorið 2026 í Kópavogskirkju
https://forms.gle/wTt6sxmUPiG8LZBn9
Síðsumarsfermingarfræðslan verður 20, 21 og 22. ágúst, 2025 frá kl. 9:00-13:00 í safnaðarheimilinu Borgum og Kópavogskirkju.Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með byrjun september, 2025 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar).
Messur 24. ágúst 2025 og 25. janúar 2026 og fundur með foreldrum eftir messu. Mikilvægt er að foreldrar og unglingarnarikomi á þessa fundi.Í vetur verður farið í dagferð í Skálholt (dagsetning nánar tilkynnt síðar.)
Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp, nokkrir hálfir dagar fyrir og eftir áramót, nánar tilkynnt síðar).Aukatímar gætu orðið ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum. Það yrði auglýst síðar.Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios og Kirkjulykill (við lánum Con Dios og seljum Kirkjulykilinn á 1.200 kr.). Hægt er að fá Nýja testamenntið gefins hjá okkur og Sálmabókin er lánuð.
Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að taka með sér „Kirkjulykilinn“ og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni. Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu. Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.Í messunum og guðsþjónustunum er beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að þau eru á helgum stað. Beðið eru um að farsímar (snjallsímar) séu ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur, það sé slökkt á þeim. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Íbúar sóknarinnar, sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna, greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar. Göngum vel um kirkjuna okkar og hugsum vel um hana.
Fermingardagar 2026 verða sem hér segir:
Sunnudag 22. mars, 2026, ef fleiri en 20 skrá sig þann dag verður fermt kl.11:00 og 13:00. Ef færri en 20 skrá sig á daginn er fermt kl. 11:00.
Svo þetta liggi sem fyrst ljóst fyrir er mikilvægt að skrá unglingana sem í fræðsluna við fyrsta tækifæri.
Pálmasunnudag 29. mars, 2026 kl.11:00
Skírdagur 2. apríl 2026, kl. 11:00
Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.
Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju, vorið 2026:
Sunnudag 22. mars, 2026, kl. 11:00
Æfingar eru 20. mars kl. 16:15-17:00 fyrir hópinn sem fermist kl. 11:00 og
- mars kl. 17:15-18:00 ef fermt verður þann 22/3/26 kl. 13:00 (kemur endanlega í ljós þegar skráningum í fræðsluna er lokið og því mikilvægt að skrá unglingana sem fyrst).
Pálmasunnudagur 29. mars, 2026 kl. 11:00.
Æfing 27. mars kl. 16:15-17:00
Skírdagur 2. apríl 2026, kl. 11:00.
Æfing 30. mars kl. 10:00-11:00.
Kópavogskirkja er á Facebook, Instagram, Tik Tok og heimasíðan er: www.kopavogskirkja.is Þar leitumst við að hafa upplýsingar um starfið.Fermingarfræðslugjald er 24.992kr. krónur samkvæmt viðmiðunargjaldskrá Prestafélags Íslands frá 1. apríl 2025. Gjald fyrir síðsumarfermingarfræslu greiðist í ágúst n.k. Ef óskað er eftir að greiða gjaldið síðar vinsamlega sendið tölvupóst á netfagnið: kopavogskirkja@kirkjan.isVIÐ NOTUM TÖLVUPÓST Í SAMSKIPTUM– MIKILVÆGT AÐ FÁ NETFÖNG FORELDRA og FORRÁÐAFÓLKS TIL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR BERIST GREIÐLEGA. Allar upplýsingar varðand safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.is
Skannið enn kvóðann til að komast í skráningarform fyrir fermingar og fræðslu 2026 í Kópavogskirkju
Skráning í fermingarfræðslu og fermingar 2025-2026
/in Fréttir/by Grétar Halldór GunnarssonNú hefur verið opnað fyrir skráningar í fermingarfræðslu og fermingar við Kópavogskirkju 2025-2026. Skráningarhlekk er hér að finna: https://forms.gle/wTt6sxmUPiG8LZBn9
Karlakaffi þriðjudaginn 6. maí
/in Fréttir/by Grétar Halldór GunnarssonKarlakaffi Kópavogskirkju mætir aftur til leiks núna á þriðjudaginn 6. maí kl 10.30-11.45. Í þetta sinn koma framkvæmdastjóri og markaðsstjóri Sky Lagoon í heimsókn og segja frá starfsemi Skylagoon, stöðu þess á Kársnesinu, áhrif starfseminnar á nærsamfélagið og álit þess á skipulagsmálum bæjarins og framtíðarsýn. Kaffi, kruðerí og spjall.
Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta 18/05/2025maí 15, 2025 - 10:48 e.h.
- Fermingarfræðsla og fermingar vorið 2026 í Kársnessóknmaí 4, 2025 - 12:50 e.h.
- Skráning í fermingarfræðslu og fermingar 2025-2026maí 4, 2025 - 11:35 f.h.
- Karlakaffi þriðjudaginn 6. maímaí 3, 2025 - 11:21 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurmaí 2, 2025 - 6:00 e.h.