Guðsþjónusta 29. maí 2016

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju 29. maí n.k. kl. 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Guðsþjónusta 22. maí, kl. 11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju 22. maí n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéóvá.

Fermingar vorið 2017

Síðsumarnámskeið verður 15. til 19. ágúst, 2015 frá kl. 9:15-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Messa 28. ágúst og fundur með foreldrum eftir messu.

Fermingarnámskeið í Vatnaskógi miðvikudaginn 2016.

Vetrarfermingarfræðsla (þau sem eru ekki í síðsumarfermingarfræðslunni)

Tímar í september,5,12,19,26, 2016

Tímar í október 3,10, 24 31, 2016

Tímar í nóvember, 7,14,21 og 28 ,2016

Tímar í desember, 5, 2016

Tímar í janúar, 16, 23, 2017

Tímar í febrúar, 6,13,20,27, 2017 

Tímar í mars, 6, (próf) ,2017

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp):

  1. september, 10. október, 28. nóvember og 5. desember, 2016.

23, janúar, 27. febrúar og 7. mars, 2017.

Kennt er frá kl. 16:00-16:40

Aukatímar gætu orðið á laugardögum kl. 11:00 ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum.

Það yrði auglýst síðar.

Í haust förum við í Vatnaskóg og dveljum þar í einn dag. Farið verður í Vatnaskóg 17. október kl. 8:30 frá Kópavogskirkju og komið til baka að Kópavogskirkju eftir kvöldmat í Vantaskógi.

Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios og Kirkjulykill (fást í bókabúðum og Kirkjuhúsinu á Laugarvegi). Gott að eiga Sálmabók Þjóðkirkjunnar og Nýja testamenntið.

Einnig getið þið samið við fermingarbörn frá því á síðasta ári um not eða kaup á bókinni.

Mikilvægt er að eignast bókina strax, svo við getum verið samferða í tímunum. Einnig skal hafa með sér í alla tíma A4 verkefnabók.

Messur í vetur!

Fermingarbörnin eru hvött til að sækja helgihald eins vel og unnt er.

Messur og guðsþjónustur eru á sunnudögum kl. 11:00 í Kópavogskirkju.

Sunnudagaskólinn hefst að öllu jöfnu í kirkjunni nema annað sé auglýst á www.kopavogskirkja.is

Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að taka með sér „Kirkjulykilinn“ og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni.

Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu.

Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.

Í messunum og guðsþjónustunum er beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að þau eru á helgum stað. Beðið eru um að farsímar séu ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur, það sé slökkt á þeim.

Næsta vetur verða tveir fundir með foreldrum fermingarbarna.

Fyrri fundurinn verður sunnudaginn 28. ágúst, 2016 eftir messu kl. 11:00.

Seinni fundurinn verður eftir messu kl.11:00 sunnudaginn 29. janúar, 2016 og þá verður rætt um fermingarathöfnina og framkvæmd hennar.

Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi.

Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Íbúar sóknarinnar, sem eru skráðir í þjóðkirkjuna, greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar. Göngum þess vegna vel um kirkjuna okkar og hugsum vel um hana.

Fermingardagar 2017 verða sem hér segir:

Sunnudagurinn 2. apríl, 2017, kl.11:00

Pálmasunnudagur 9. apríl , 2017, kl. 11:00

Skírdagur 13. apríl, 2017, kl.11:00

Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár.

Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.

Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju:

Sunnudaginn 2. apríl, kl. 11:00, þá verður æft 30 og 31. mars kl. 16:00-17:00

Pálmasunnudag 9. apríl, kl. 11:00, þá verður æft 6 og 7. apríl kl. 16:00-17:00.

Skírdag 13. apríl, kl.11:00, þá verður æft 10 og 11. apríl, kl. 16:00-17:00.

VIÐ NOTUM TÖLVUPÓST Í SAMSKIPTUM

MIKILVÆGT AÐ FÁ NETFÖNG FERMINGARBARNA OG FORELDRA TIL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR BERIST GREIÐLEGA.

Allar upplýsingar varðand safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.i

Guðsþjónunsta á Uppstigningardegi

Guðsþjónusta verður á Uppstigningardegi 5. maí kl.14:00 í Kópavogskirkju.  Í Þjóðkirkjunni er dagurinn tileinkaður eldra fólki.  Ásta Ágústsdóttir, djákni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Arnarsyni, sóknarpresti.  Samkór Kópavogs syngur undir stjórn Friðriks Kristinssonar.  Organisti er Lenka Mátéová. Að lokinni guðsþjónustu er kirkjugestum boðið að þiggja veitingar í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.  Samkórinn mun taka þar nokkur lög. Allir hjartanlega velkomnir.