Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta og messukaffi 09/05/24maí 6, 2024 - 9:45 f.h.
- Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.11:00, 5/5/24maí 3, 2024 - 9:31 e.h.
- Upplýsingar vegna fermingafræðslu og ferminga vorið 2025apríl 29, 2024 - 9:14 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurapríl 28, 2024 - 9:11 e.h.
- Mál dagsins 23/4/24apríl 22, 2024 - 12:48 e.h.
Guðsþjónusta 30. september kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 30. september kl. 11:00. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
Haustferð
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÞriðjudaginn 25. september var safnaðarferð Kársnessóknar. Bessastaðir voru heimsóttir þar sem forseti tók á móti hópnum ásamt samstarfsfólki. Síðan var haldið í Viðistaðakirju þar sem freskur Baltasar voru meðal annars skoðaðar og Hörður Traustason og samstarfsfólk reiddu fram súpu. Sr. Stefán Mar héraðsprestur í Kjalarnesinesprofastsdæmi fræddi um Hafnarfjörð. Síðan var ekið um Krísuvík að Strandakirkju þar sem Guðmundur Brynjólfsson, djákni fræddi um kirkjuna. Þaðan var haldið í kaffi á veitingastaðinn Hafið bláa. Síðan var haldið heim.
Guðsþjónusta 23. september kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. september kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Peter Máté. Sunnudagaskólinn að venju kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.
Starf fyrir börn í 1-2 bekk
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonKirkjustarf er fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum. Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðafólk óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Frístund í Kársnesskóla. Starfið hefst 26. september n.k.
Endurbætur á Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÆskulýðsfundir hefjast fimmtudagskvöldið 20. september kl. 20:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÆskulýðsfundir fyrir 8. bekk hefjast fimmtudagskvöldið 20. september kl.20:00-21:30. Dagskrá er sniðin af þörfum þessa aldurshóp og allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins þriðjudaginn 18. september kl. 14:30-16:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins verður þriðjudaginn 18. september n.k. kl. 14:30 -16:00. Stundin hefst með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Kl.15:10-15:30 flytur Elsa Haraldsdóttir, hárgreiðslumeistari erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Haustferð Kársnessafnaðar
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHaustferð Kársnessafnaðar verður þriðjudaginn 25. september n.k. frá kl. 10:00-16:00. Bessastaðir verða heimssóttir og farið um Álftanes, Hafnarfjörð og nærsveitir. Skráningu í ferðina lykur föstudaginn 21. september. Hægt er að hringja á skrifstofu safnaðarins frá kl. 09:00-13:00 virka daga dag (s:5541898) til að skrá sig eða senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is
Verð liggur ekki enn fyrir. Allir hjartanlega velkomnir.
„Tímabil sköpunarverksins“, guðsþjónusta 16. september kl.11:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonUppskeruguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 16. september n.k. kl.11:00 á Degi íslenskrar náttúru. Gerður Magnúsdóttir, leikskólakennari talar um efnið frá sínu hjarta. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fluttar verða bænir og ritingarlestrar og sungnir sálmar sem tengjast náttúrunni og sköpuninni. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagaskólinn 9. september n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskólinn verður sunnudaginn 9. september kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Góð stund til þess að koma saman með börnunum til að fræðast um Guð og syngja saman. Allir hjartanlega velkomnir.