Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta og messukaffi 09/05/24maí 6, 2024 - 9:45 f.h.
- Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.11:00, 5/5/24maí 3, 2024 - 9:31 e.h.
- Upplýsingar vegna fermingafræðslu og ferminga vorið 2025apríl 29, 2024 - 9:14 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurapríl 28, 2024 - 9:11 e.h.
- Mál dagsins 23/4/24apríl 22, 2024 - 12:48 e.h.
Mál dagsins – Sigvaldi Kaldalóns
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefst að venju kl. 14:30 þann 29. október n.k. með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 heldur dr. Gunnlaugur A. Jónsson erindi um afa sinn Sigvalda Kaldalóns. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 28. október kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 28. október kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðstprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
Erkibiskup evangelísku lúthersku kirkjunnar í Finnlandi prédikar í Kópavogskirkj
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudaginn 21. október kl.11:00 mun dr. Tapio Luoma prédika í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir velkomnir
Unglingaguðsþjónusta sunnudagskvöldið 14. október kl. 20 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHjalla-, Digranes- og Kópavogskirkja standa að unglingaguðsþjónustu í Kópavogskirkju sunnudagskvöldið 14. október n.k. kl. 20:00. Unglingar úr æskulýðsstarfi Kópavogskirkju sýna „Týnda soninn“, lesa ritningarlestra og leiða bænir. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Sr. Sigurður Arnarson flytur hugleiðingu. Allir hjartanlega velkomnir.
Heimsókn frá Uganda
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudaginn 14. október kl. 11:00 munu þau Douglas og Thrudy frá Uganda segja frá starfi Hjálparstarfs kirkjunnar í Uganda. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Allir hjartanlega velkomnir.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 7. október
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 7. október n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sunnudagaskólinn tekur þátt í stundinni og félagar úr Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.
Starf fyrir börn í 1-2 bekk
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonVikulega er starf fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Fyrirbænastundir á þriðjudögum kl. 13:45 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFyrirbænastundir eru á þriðjudögum kl. 13:45 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 2. október
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins verður að venju þriðjudaginn 2.okótber frá kl. 14:30-16:00. Stundin hefst með samsöng frá kl. 14:30-15:10 undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 segir Gunnar Gylfason frá starfi KSÍ. Kaffi drukkið kl. 15:30 og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÆskulýðsfundir eru fyrir 8. bekk á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum.