Entries by Sigurður Arnarson

Messa 31. janúar n.k.

Messa verður 31. janúar n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flyst síðan í safnaðarheimilið Borgir.  Til messunnar eru boðin fermingarbörn vorsins og foreldrar þeirra.  Eftir messu verður fundur í kirkjunni með fermingarbörnum […]

Mál dagsins 26. janúar

Næsta Mál dagsins verður 26. janúar n.k. kl. 14:30-16:00 og hefst með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:10 verður flutt 20 mínútna erindi.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.

Sorgarhópur

Mánudaginn 1. febrúar n.k. frá kl. 20:00-21:30 hefur göngu sína starf með syrgjendum alls 8 skipti (hisst er vikulega fyrstu 6 skiptin).  Hópurinn er ætlaður konum, sem hafa misst nána ættingja.  Handleiðslu annast Ásta Ágústsdóttir, djákni.  Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu safnaðarins virka daga á milli 09:00-13:00 eða með því að senda tölvupóst á […]

Kirkjustarf fyrir 1-4 bekk

Kirkjustarf fyrir börn í 1-4 bekk hefst aftur miðvikudaginn 19. janúar eftir jólafrí.  Starfið er á miðvikudögum frá kl. 14:00-15:00.  Ef óskað er eftir því er hægt að ná í börnin í Dægradvöl Kársnesskóla og skila aftur að starfi loknu.   Allir hjartanlega velkomnor

„Að skoða hið augljósa“ – fyrirlestrarröð

Að skoða hið augljósa? Guðfræði Jóhannesar.  Fyrirlestraröð í Breiðholtskirkju fimmtudagskvöld kl. 20 – 22. Fyrsta skiptið er 14. jan og síðasta 17. mars. nóv.  Dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur fjallar um guðfræðina í guðspjalli Jóhannesar.  Það má segja að meðan samstofna guðspjöllin (matt, mark og lúk) fjalla um verk og hlutskipti Jesú þá fjalli […]

Mál dagsins 19. janúar

Næsta „Mál dagsins“ verður þriðjudaginn 19. janúar n.k og hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Kl. 15:10 heldur Helgi Árnason, skólastjóra erindi um skólastarfið í dag.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.

Guðsþjónusta 17. janúar

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 17. janúar n.k. kl.11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Máteóvá.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í guðsþjónustunni en flyst svo í safnaðarheimilið Borgir.  Allir hjartanlega velkomnir.

Foreldramorgnar

Hvar:                  Í Borgum – safnaðarheimili Kópavogskirkju  Hvenær:    Alla fimmtudagsmorgna kl. 10:00 – 12:00.  Hefjast aftur eftir áramót 14. janúar.  Notaleg samverustund fyrir mömmur og pabba þar sem hægt er að spjalla um allt milli himins og jarðar, leita ráða og bera saman bækur sínar. Hverri samveru lýkur með söngstund með krílunum. Reglulega koma gestir í […]