Entries by Sigurður Arnarson

Guðsþjónusta 4. nóvember kl.11:00

Minnst verður sérstaklega þeirra, sem eru látin.  Beðið verður með nafni og kveikt á kerti til minningar um hvert þeirra, sem sóknarprestur Kópavogskirkju hefur jarðsungið frá 20. október 2017 til og með 29. október 2018.  Aðstandendum þeirra er boðið sérstaklega til guðsþjónustunnar.  Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna.  […]

Mál dagsins – Sigvaldi Kaldalóns

Mál dagsins hefst að venju kl. 14:30 þann 29. október n.k. með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 heldur dr. Gunnlaugur A. Jónsson erindi um afa sinn Sigvalda Kaldalóns.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Unglingaguðsþjónusta sunnudagskvöldið 14. október kl. 20 í Kópavogskirkju

Hjalla-, Digranes- og Kópavogskirkja standa að unglingaguðsþjónustu í Kópavogskirkju sunnudagskvöldið 14. október n.k. kl. 20:00.  Unglingar úr æskulýðsstarfi Kópavogskirkju sýna „Týnda soninn“, lesa ritningarlestra og leiða bænir.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.  Sr. Sigurður Arnarson flytur hugleiðingu.  Allir hjartanlega velkomnir.

Heimsókn frá Uganda

Sunnudaginn 14. október kl. 11:00 munu þau Douglas og Thrudy frá Uganda segja frá starfi Hjálparstarfs kirkjunnar í Uganda.  Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Allir hjartanlega velkomnir.