Entries by Sigurður Arnarson

Mál dagsins 2. október

Mál dagsins verður að venju þriðjudaginn 2.okótber frá kl. 14:30-16:00.  Stundin hefst með samsöng frá kl. 14:30-15:10 undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 segir Gunnar Gylfason frá starfi KSÍ.  Kaffi drukkið kl. 15:30 og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00.  Allir hjartanlega velkomnir.

Haustferð

Þriðjudaginn 25. september var safnaðarferð Kársnessóknar. Bessastaðir voru heimsóttir þar sem forseti tók á móti hópnum ásamt samstarfsfólki. Síðan var haldið í Viðistaðakirju þar sem freskur Baltasar voru meðal annars skoðaðar og Hörður Traustason og samstarfsfólk reiddu fram súpu. Sr. Stefán Mar héraðsprestur í Kjalarnesinesprofastsdæmi fræddi um Hafnarfjörð. Síðan var ekið um Krísuvík að Strandakirkju […]

Starf fyrir börn í 1-2 bekk

Kirkjustarf er fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30  í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.  Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðafólk óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Frístund í Kársnesskóla.  Starfið hefst 26. september  n.k.