Entries by Sigurður Arnarson

Starf fyrir börn í 1-2 bekk

Kirkjustarf er fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30  í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.  Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðafólk óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Frístund í Kársnesskóla.  Starfið hefst 26. september  n.k.

Haustferð Kársnessafnaðar

Haustferð Kársnessafnaðar verður þriðjudaginn 25. september n.k. frá kl. 10:00-16:00. Bessastaðir verða heimssóttir og farið um Álftanes, Hafnarfjörð og nærsveitir. Skráningu í ferðina lykur föstudaginn 21. september. Hægt er að hringja á skrifstofu safnaðarins frá kl. 09:00-13:00 virka daga dag (s:5541898) til að skrá sig eða senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is Verð liggur ekki enn […]

„Tímabil sköpunarverksins“, guðsþjónusta 16. september kl.11:00 í Kópavogskirkju

Uppskeruguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 16. september n.k. kl.11:00 á Degi íslenskrar náttúru. Gerður Magnúsdóttir, leikskólakennari talar um efnið frá sínu hjarta. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fluttar verða bænir og ritingarlestrar og sungnir sálmar sem tengjast náttúrunni og sköpuninni. Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins

Mál dagsins hefur aftur göngu sína í haust, n.k. þriðjudag 4. september kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 er flutt erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.