„Jól í skókassa“

„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð.

Tekið er á móti skókössum í safnaðarheimilinu Borgum, föstudaginn 13. nóvember kl. 10:00-12:00 eða  í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 alla virka daga kl. 9:00 – 17:00 fram að síðasta skiladegi, sem er 14. nóvember. Allar upplýsingar um móttökustaði og síðustu skiladaga er hægt að finna á síðunni undir „Móttökustaðir“  á www.skokassar.is

Hvernig á að ganga frá skókassanum?

  1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. Hægt er að nálgast skókassa í skóbúðum og mælt er með að fólk tryggi sér kassa í tæka tíð.
  2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18).
  3. Setjið 500-1.000 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
  4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann.

Gjafir í skókassana

Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:

  • Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
  • Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
  • Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
  • Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
  • Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.

Hvað má ekki fara í skókassana?

  • Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
  • Matvara.
  • Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.
  • Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
  • Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
  • Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
  • Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana.

Athugið!

Ef þú vilt getur þú sett mynd af þér ásamt nafni og heimilisfangi og/eða netfangi efst í skókassann. Það gefur viðtakanda skókassans möguleika á að setja sig í samband við þig. Þannig geta myndast vinatengsl sem varað geta lengi.

Stuðningur við verkefnið

Hægt er að styðja við verkefnið með fjárframlagi með því að leggja inn á reikning 117-26-100000, kennitalan er 690169-0889.

Með þínu framlagi tryggir þú að barn, sem annars fengi ekki jólagjöf, fái gjöf sem færir því gleði, von og hinn raunverulega boðskap jólanna, kærleika Jesú Krists.

Nánar um verkefnið á www.skokassar.is