Entries by Ásta Ágústsdóttir

Páskadagur í Kópavogskirkju

Á páskadag var guðsþjónusta í Kópavogskirkju sem var tekin upp og má nálgast upptöku hér:   https://www.youtube.com/watch?v=oUePh6nJ7dQ   Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, settur sóknarprestur prédikaði og þjónaði fyrir altari, félagar úr kór Kópavogskirkju sungu undir stjórn Lenku Mátéová sem lék á orgelið. Messuþjónarnir Anna María Hákonardóttir og Egill Reynisson lásu bænir.

Skert viðvera á skrifstofu Kópavogskirkju

Vegna aðstæðna í samfélaginu og heimavinnu starfsfólks er ekki hefðbundin viðvera á skrifstofu safnaðarins. Við fylgjumst vel með símsvara kirkjunnar sími 554 1898 og tölvupósti, við biðjum ykkur að nýta þá leið til samskipta. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, settur sóknarprestur sjofnjo@simnet.is, gsm 892 7651 og Ásta Ágústsdóttir, djákni asta.agustsdottir@kirkjan.is.  Neyðarsími presta í Kópavogi sem ætlaður er […]

Páskar í Kópavogskirkju

Á páskadag verður helgistund í kirkjunni kl. 12.00. Nokkrir félagar úr kirkjukórnum syngja páskasálma og guðspjallið verður lesið og flutt hugleiðing. Stundin verður sett inn á facebook síðu safnaðarins. Guð gefi öllum gleðilega páskahátíð.

Bænastund og klukknahljómur á hádegi dag hvern.

Alla daga eru bænastundir í kirkjunni sem hefjast með klukknahringingu í 3 mín kl. 12.00. Lenka Mátéová spilar á orgel, Hannes Sigurgeirsson kirkjuvörður hringir klukkum, Egill Reynisson og Anna María Hákonardóttir messuþjónar lesa bænir. Ásta Ágústdóttir djákni og settur sóknarprestur sr. Sjöfn Jóhannesdóttir hafa skipt með sér bænastundunum. Við bendum á að á heimasíðu Þjóðkirkjunnar, […]

Hádegishljómur í kirkjuklukkum Kópavogskirkju

Hádegishljómur verður í kirkjuklukkum landsins og sameiginleg bænastund hvern dag. Um er að ræða bænastund í kirkjum landsins kl. 12.00 á hádegi hvern dag. Kirkjuklukkum verður hringt í þrjár mínútur, í kirkjum landsins kl. 12.00 á hádegi hvern dag meðan á samkomubanni stendur. Síðan hefst bænastund. Kirkjuklukkurnar kalla fólk til samlíðunar og ábyrgðar. Þær kalla […]

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 18. september n.k.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 18. september kl. 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson og Ásta Ágústsdóttir, leiða stundina.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar  Björgvinsdóttur.  Hljómsveit með Bjarma Hreinssyni og fleirum leikur undir.  Á eftir barna- og fjölskylduguðsþjónustunni verður stuttur fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra.  Allir velkomnir.