Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
Guðaþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11:00 þann 21. desember 2025desember 20, 2025 - 10:55 f.h.
Helgihald á jólum og um áramótdesember 18, 2025 - 10:05 e.h.
Messa & sunnudagaskóli 14/12/25desember 11, 2025 - 10:46 f.h.
Tónlistarguðsþjónusta í Kópavogskirkju 7/12/25 kl.11:00desember 6, 2025 - 7:57 f.h.
Tónlistarguðsþjónusta 7/12/25 kl.11:00desember 4, 2025 - 12:47 e.h.

1-4 bekkjarstarf á fimmtudögum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSíðasta 1-4 bekkjarstarfið fyrir jólafrí verður fimmtudaginn 1. desember n.k. 1-2 bekkur hittist kl. 14:00-15:00 og 3-4 bekkur frá kl. 15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Starfið hefst aftur í þriðju viku janúar á næsta ári. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 29. nóvember n.k.
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonNæsta mál dagsins verður þriðjudaginn 29. nóvember n.k. kl.14:30 og hefst að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 flytur Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar erindi. Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 22. nóvember
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefst að venju kl. 14:30 þriðjudaginn 22. nóvember með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Kl. 15:10 flytur Inga Lára Baldvinsdóttir fyrirlestur um Ljósmyndasafn Íslands. Kl. 15:30 verður drukkið kaffi. Starfinu lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventa og jól í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður Arnarson29. nóvember. Fyrsti sunnudagur í aðventu. Kl. 11:00 Tónlistarmessa. Fluttir verða aðventu- og jólasálmar. Friðarlogi frá skátum afhenntur.
Sóknarprestur, prédikar og þjónar í öllum guðsþjónustum nema annað sé tekið fram. Kór Kópavogskirkju syngur í öllum guðsþjónustum undir stjórn Lenku Mátéová nema annað sé tekið fram. Nánar á www.kopavogskirkja.is
Ljósmyndir af Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMeðfylgjandi eru ljósmyndir, sem Lasse Olson tók nýverið af og í Kópavogskirkju.







Helgihald framundan í Kópavogskirkju í nóvember og desember 2016
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonDagsetning Tími Tegund helgihalds Prestur/Djákni Annað
Sameiginleg fermingarfræðsla 17. nóvember kl. 19:30
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFermingarfræðsla fyrir allan hópinn verður fimmtudaginn 17. nóvmeber n.k. kl. 19:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Sýnd verður kvikmyndin Málmhaus eftir Ragnar Bragason. Eftir sýningu mun Ragnar fjalla um myndina og viðfangaefni hennar. Sr. Sigurður mun ræða um sorg og sorgarviðbrögð vegna andláta. Foreldrar fermingarbarna eru hvött til að koma til fræðslunnar ásamt sínum unglingum.
Guðsþjónusta 20. nóvember kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 20. nóvember kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagssmiðja fyrir börn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonNæsta Mál dagsins verður þriðjudaginn 15. nóvember n.k. kl. 14:30 og hefst með samsöng undir stjórn; Lenku Mátéová og Friðriks Karlssonar. Um kl. 15:10 flytur Kristján Schram erindi um hvernig auglýsingar verða til. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Fyrirbænastundir á þriðjudögum kl. 12:10 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður Arnarson