Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Starfið í Kársnessóknseptember 10, 2025 - 10:17 e.h.
- Starfið haust 2025september 10, 2025 - 10:16 e.h.
- Barnastarf 1.-.3 bekkjarseptember 10, 2025 - 10:20 f.h.
- Safnaðarferð 16/9/25september 8, 2025 - 11:05 e.h.
- Mál dagsins 9/9/25september 7, 2025 - 8:26 e.h.
Mál dagsins 17. desember
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMál dagsins 17. desember hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 mun Páll Baldvin Baldvinsson segja frá nýútkominni bók sinni um Síldarárin. Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi og kl. 16:00 lýkur stundinni með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins fellur niður í dag 10. desember, vegna slæmrar veðurspár.
/in Fréttir/by Ásta ÁgústsdóttirMál dagsins 10. desember
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMál dagsins verður þriðjudaginn 10. desember og hefst kl. 14:30 í safnaðarheimilinu Borgum með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 verður flutt mál dagsins. Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 15. desember 2019
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnnudaginn 15. desember næstkomandi kl. 11:00. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, settur héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjuhlaup á aðventu í Kópavogi
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonHlaupið var á milli kirkna í Kópavogi í morgunn og tóku yfir 100 manns þátt í hlaupinu. Hlaupið er samvinnuverkefni á milli Hlaupahóps Breiðabliks og Kópavogskirkju. Í upphafi var safnast saman í Kópavogskirkju og farið yfir hlaupa- og gönguleiðir en gönguhópur tók nú þátt í fyrsta sinn. Lenka Mátéová, kantor Kópavogskirkju lék á orgel kirkjunnar og viðstaddir sungu saman „Bjart er yfir Betlehem“. Að loknu hlaupi og göngu var safnast saman í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum en þar var í boði heitt súkkulaði og piparkökur.
Guðsþjónusta 8. desember kl. 11:00
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 8. desember kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Allir hjartanlega velkomnir. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
Aðventuhlaup og ganga 7. desember n.k. kl.09:00 frá Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonALLIR VELKOMNIR MEÐ AÐVENTUHLAUP OG GÖNGU KÓPAVOGS 2019
Kópavogskirkja efnir nú í sjötta sinn til hlaups á milli kirkna og kapella í Kópavogi í samvinnu við hlaupahóp Breiðabliks.Safnast er saman í Kópavogskirkju, Siggi prestur tekur vel á móti okkur og sunginn jólasálmur. Aðgangur er að salerni inni í kirkjunni. Einnig verður myndataka áður en lagt verður af stað.
Hlaupinn verður ca.11 km hringur- ATH: ÞETTA ER SAMSKOKK, ALLIR SAFNAST SAMAN VIÐ KIRKJURNAR/KAPELLURNAR ÁÐUR EN HALDIÐ ER AF STAÐ AÐ NÆSTA ÁFANGASTAÐ -Komið verður við á eftirfarandi stöðum á leiðnini: Kópavogskirkja – Hjallakirkja – Lindakirkja – Digraneskirkja – Sunnuhlíðarkapella – Kapellan líknardeildinni – Kópavogskirkja Auðvelt að stytta í t.d. 7km hring með því að sleppa Lindakirkju (sjá mynd)
Að þessu sinni verður boðið uppá nýjung, 7km göngu.
AÐ LOKNU HLAUPI/GÖNGU ER BOÐIÐ UPPÁ HEITT SÚKKULAÐI OG PIPARKÖKUR Í BORGUM – SAFNAÐARHEIMILI KÓPAVOGSKIRKJU.
Mál dagsins 3. desember
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefst að venju þriðjudaginn 3. desember kl. 14:30 með samsöng sem Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová, leiða. Klukkan 15:10 segir dr. Dóra Bjarnason, frá nýútkominni bók eftir sig. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Jólatónleikar Kórs Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFyrsti sunnudagur í aðventu, barna- og fjölskylduguðsþjónusta, jólaball
/in Fréttir/by Sigurður Arnarson1.desember kl. 11:00. Fyrsti sunnudagur í aðventu.Barna- og fjölskylduguðsþjónusta. Sjö ára börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Þóru Marteinsdóttur. Skátar færa Kópavogskirkju friðarljós. Jólaball á eftir.
1. desember kl. 12:00. Jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Dansað og sungið í kringum jólatré og rauðklæddur gestur kemur í heimsókn.