Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
Guðsþjónusta 16/04/25apríl 16, 2026 - 9:16 f.h.
Kópavogskirkja- Mál dagsinsapríl 13, 2026 - 11:23 e.h.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju 12. aprílapríl 10, 2026 - 6:44 e.h.
Mál dagsins og Karlakaffi 7/04/26apríl 6, 2026 - 10:25 f.h.
Guðsþjónusta kl.11:00 á föstudeginum langa í Kópavogskirkjuapríl 2, 2026 - 10:32 e.h.

Æskulýðsfundir hefjast aftur fyrir 8. bekk
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonÆskulýðsstarf fyrir 8. bekk hefst fimmtudaginn 21. janúar kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Skemmtilegt starf fyrir unglinga. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagaskólinn og helgistund á facebókarsíðu kirkjunnar, 17. janúar 2021
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskólanum og helgistund verður streymt á facebókarsíðu kirkjunnar 17. janúar, 2021.
Fermingarstarfið
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonStreymi frá útför Sigurliða Guðmundssonar.
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonStreymi frá útför Sigurliða Guðmundssonar verður mánudaginn 28. desember kl. 13:00 frá Kópavogskirkju, vefslóðin er:https://youtu.be/vWKd0fVp6no
Helgihald í Kópavogskirkju á jólum og áramótum 2020
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonÚtför Herdísar Hólmsteinsdóttur
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMeðfylgjandi er slóð fyrir útför Herdísar Hólmsteinsdóttur, föstudaginn 18. desember kl. 15:00 frá Kópavogskirkju.
https://youtu.be/3fgC8K3AIXU
Helgihald framundan í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFramkvæmdir við rúðugler og steint gler Gerðar Helgadóttur á norður- og austurhlið Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFimmtudaginn 3. desember s.l.
var lokið við uppsetningu á nýviðgerðu steindu gleri Gerðar Helgadóttur a norður og austurhlið Kópavogskirkju en verkið önnuðust sérfræðingar frá Oitmann glerverkstæðinu í Linnich í Þýskalandi og hefur sú vinna staðið síðan í júlí síðastliðnum. Nú eru Gunnar Örn og félagar hjá Fagsmíði að taka niður stillasa inn í kirkjunni og mun það verk taka nokkra daga. Áfram mun Fagsmíði vinna að við glugga kirkjunnar að utan. Áætlað er að taka kirkjuna aftur í notkun um næstu helgi. Meðfylgjandi myndir voru teknar föstudaginn 4. desember af nýviðgerðum gluggum. Ein myndin sýnir glugga á vesturhlið kirkjunnar (ekki búið að gera við) og sprungu á blýi í honum. Öllum sem komið hafa að verkinu er þakkað fyrir þeirra vinnu og framlag

Helgistund 1. sunnudag í aðventu- Helgun bænaljósastjaka
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonStreymt er á hlekknum:https://youtu.be/4Nbhk0xoIGg eða
https://www.facebook.com/Kópavogskirkja-387710974680
frá helgistund á fyrsta sunnudegi í aðventu. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina. Þórey Lilja tendrar á fyrsta kerti aðventukransins. Sr. Sigurður Arnarson helgar nýjan bænastjakastand sem Kópavogskirkju hefur borist að gjöf frá fjölskyldu í Kópavogi. Verkið er eftir Sigurð Árna Sigurðsson, listamann. Félagar í Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
Kirkjuhlaup í Kópavogi 2020
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonVið erum búin að reyna að finna bestu lausnina hvernig hægt er að útfæra aðventuhlaupið með tillliti til gildandi sóttvarnarlaga.
Við ætlum að gera okkar besta úr erfiðri stöðu og bjóðum því uppá tvo valkosti.
Kostur 1:
Þið búið til aðventuhlaup í ykkar hverfi. Mælið ykkur mót við hlaupafélagana, finnið nokkrar kirkjur, útbúið skemmtilegar hlaupaleiðir og deilið gleðinni með okkur hérna á fésbókinni. Við viljum myndir af gleðinni og ekki verra ef það kemur fram hvar þið hlupuð og hvaða kirkjur þið heilsuðuð uppá.
Kostur 2:
Þið mætið uppí Kópavogskirkju kl.9.00.
Það er því miður ekki hægt að bjóða ykkur inn í kirkjuna, né inn í safnaðarheimilið og ekki verður boðið uppá veitingar eftir hlaup. Athugið að salerni eru líka lokuð.
Við ætlum að hlaupa þessa leið eins og vanalega, við ætlum að passa uppá fjarlægðarmörkin. Endilega verið dugleg að taka myndir og deila gleðinni hér inná fésbókinni.