Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
Messa á sjómannadag 07/06/26júní 4, 2026 - 10:14 f.h.
Kópavogskirkja – Guðsþjónusta 31. maí kl.11:00maí 30, 2026 - 3:04 e.h.
Guðsþjónusta Hvítasunnudaginn 24/05/26maí 22, 2026 - 9:48 f.h.
Þjóðmálakaffi 19. maímaí 17, 2026 - 12:45 e.h.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju 17. maí kl.11:00maí 15, 2026 - 8:14 e.h.

Mál dagsins 05/05/26 kl. 14.30
/in Fréttir/by Grétar Halldór GunnarssonMál dagsins verður á sínum stað þriðjudaginn 5. maí kl. 14.30-16.00. Þórunn Björnsdóttir leiðir samsöng. Björn Bjarnason fyrrum ráðherra kemur og segir frá áratugalangri vegferð sinni sem iðkandi kínverska æfingakerfisins Qigong. Matur og samfélag á eftir.
Messa & fundur 03/05/26
/in Fréttir/by Grétar Halldór GunnarssonÁ sunnudaginn 3. maí kl. 11.00 verður messa í Kópavogskirkju. Sérstaklega er væntanlegum fermingarbörnum næsta árs og foreldrum/forráðamönnnum þeirra boðið. Sr. Sigurður Arnarson prédikar, og sr. Grétar Halldór Gunnarsson og Ásta Ágústsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Elísu Elíasdóttur sem spilar á orgel. Eftir guðsþjónustu verður upplýsingarfundur í kirkjunni fyrir þau sem hafa hug á að fermast á næsta ári.
Kópavogskirkja-Mál dagsins 28/4/26
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonGlæsileg gjöf til Kársnessafnaðar og afmælissýning félags áhugafólks um tréskurður
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonLaugardaginn 25. apríl fæði Stofnun Wilhelms Beckmanns Kársnessöfnuði tvö sófasett Max 1 og Max 2 til eignar og notkunar í safnaðarheimili safnaðarins, sem nefnt er Borgir. Sófasett þessarar gerðar voru framleidd í Trésmiðjunni Víði á 6-7 áratug 20. aldar og kennd við hönnuð sinn, Max Jeppesen, húsgagnasmíðameistara sem starfaði í Víði um árabil. Samstarfsmaður hans í Víði, Wilhelm Ernst Beckmann, myndskurðameistari, hannaði og skar út tréverkið. Max-1 áttu hjónin Hrefna Beckmann og Jón Þór Þórhallsson og höfðu á heimili sínu í Reykjavík. Stofnun Wilhelms Beckmanns eignaðist settið að þeim látnum. Max 2- sófasettið færði Ingimundur Sigurpálsson, fyrrverandi forstjóri og bæjarstjóri, Stofnun Wilhelms að gjöf. Í Borgum eru varðveittar tvær altaristöflur og fleiri útskurðarverk Wilhelms Beckmanns. Við inngang safnaðarheimilisins stendur verkið „Kona á bæn“ á stalli og er það eina myndmerkið úr steini sem Beckmann gerði á Íslandi. Loftur Þór Pétursson, bóstari endurnýjaði bæði sófasettinn á árunum 2026-2026 og skilaði glæsilegu verki. Guðmundur Jóhann Jónsson, formaður sóknarnefndar veitti þessari einstöku gjöf viðtöku fyrir hönd Kársnessafnaðar og þakkaði innilega fyrir góða gjafir og hlýhug til safnaðarins. Á sama tíma er svo haldin daganna 25-26. apríl 30 ára afmælissýning félags áhugamanna um tréskurð í safnaðarheimilinu. Aðgangseyrir er enginn og sýningin opin báða dagana frá kl. 11:00-17:00. Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi heimsótti sýninguna og Beckmannsstofu í safnaðarheimilinu af þessu tilefni.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju 26. apríl kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonHelgihald í Kópavogskirkju frá apríl til ágústsloka
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonAðalsafnaðarfundur Kársnessóknar 2026
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonScreenshot
Prjónahópur 21/4/26
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News, Uncategorized/by Sigurður ArnarsonÞriðjudagurinn 21/04/26
/in Fréttir/by Grétar Halldór GunnarssonNóg er um að vera hjá okkur þriðjudaginn 21. apríl
kl. 10.30-11.30 „Þjóðmálakaffi“ NÝR VETTVANGUR! Á morgun, þriðjudaginn 21. apríl kl. 10.30-11.30 í safnaðarheimili Kópvogskirkju fer af stað nýr dagskrárliður hjá okkur. Mánaðarlegt „þjóðmálakaffi.“ Fyrsti viðmælandi þjóðmálakaffis er Albert Jónsson, fyrrv, sendiherra. og talar um breytta stöðu Íslands í nýrri skipan alþjóðamála. Þannig kemur hann inn á Evrópumálin, loftslagsstefnu, og jafnvel málefni Írans og Úkraínu. Verið velkomin!
kl. 12.15 Bænastund í hádeginu. Beðið er fyrir fólki með nafni, tónlist er flutt og boðið upp á léttan málsverð á eftir fyrir þau sem vilja.
Kl. 14.30-16.00 Mál dagsins. Við byrjum með samsöng með Þórunni Björnsdóttur. Þá kemur Gísli Már Gíslason, prófessor Emerítus í Vatnalíffræði. Hann segir okkur frá skordýrum á Íslandi sem sjúga blóð. Kaffisamsæti á eftir.
Verið velkomin!
Guðsþjónusta 16/04/25
/in Fréttir/by Grétar Halldór GunnarssonSunnudaginn 19. apríl verður guðsþjónusta við Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur og organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Verið velkomin!