Glæsileg gjöf til Kársnessafnaðar og afmælissýning félags áhugafólks um tréskurður
Laugardaginn 25. apríl fæði Stofnun Wilhelms Beckmanns Kársnessöfnuði tvö sófasett Max 1 og Max 2 til eignar og notkunar í safnaðarheimili safnaðarins, sem nefnt er Borgir. Sófasett þessarar gerðar voru framleidd í Trésmiðjunni Víði á 6-7 áratug 20. aldar og kennd við hönnuð sinn, Max Jeppesen, húsgagnasmíðameistara sem starfaði í Víði um árabil. Samstarfsmaður hans í Víði, Wilhelm Ernst Beckmann, myndskurðameistari, hannaði og skar út tréverkið. Max-1 áttu hjónin Hrefna Beckmann og Jón Þór Þórhallsson og höfðu á heimili sínu í Reykjavík. Stofnun Wilhelms Beckmanns eignaðist settið að þeim látnum. Max 2- sófasettið færði Ingimundur Sigurpálsson, fyrrverandi forstjóri og bæjarstjóri, Stofnun Wilhelms að gjöf. Í Borgum eru varðveittar tvær altaristöflur og fleiri útskurðarverk Wilhelms Beckmanns. Við inngang safnaðarheimilisins stendur verkið „Kona á bæn“ á stalli og er það eina myndmerkið úr steini sem Beckmann gerði á Íslandi. Loftur Þór Pétursson, bóstari endurnýjaði bæði sófasettinn á árunum 2026-2026 og skilaði glæsilegu verki. Guðmundur Jóhann Jónsson, formaður sóknarnefndar veitti þessari einstöku gjöf viðtöku fyrir hönd Kársnessafnaðar og þakkaði innilega fyrir góða gjafir og hlýhug til safnaðarins. Á sama tíma er svo haldin daganna 25-26. apríl 30 ára afmælissýning félags áhugamanna um tréskurð í safnaðarheimilinu. Aðgangseyrir er enginn og sýningin opin báða dagana frá kl. 11:00-17:00. Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi heimsótti sýninguna og Beckmannsstofu í safnaðarheimilinu af þessu tilefni.





