Prjónahópur
Prjónahópur verður fimmtudaginn 3. mars kl. 19:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir velkomnir.
Prjónahópur verður fimmtudaginn 3. mars kl. 19:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir velkomnir.
Félagar í Samkór Kópavogs komu í heimsókn í Mál dagsins þriðjudaginn 1. mars síðastliðinn og sungu nokkur lög undir stjórn Friðriks Kristinssonar. Samkórinn fagnar 50 ára afmæli síðar á árinu. Þökkum við þeim þessa góðu heimsókn og allt þeirra góða starf.
Alþjóðlegur bænadagur kvenna er haldinn hátíðlegur víða um heim fyrsta föstudag í mars. Hérlendis er löng hefð fyrir bænasamverum á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Vestmannaeyjum, Stykkishólmi, í Miðfirði og á fleiri stöðum. Bænadagssamkoma höfuðborgarsvæðisins verður að þessu sinni haldin í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 20 föstudagskvöldið 4. mars. Unglingagospelkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Helgu Vilborgar Sigurjónsdóttur sem einnig leikur undir almennan söng. Bænarefni og önnur dagskrá koma frá konum í Kúbu sem leggja áherslu á að hlúð sé að börnum á allan máta. Svana Lísa Davíðsdóttir segir frá dvöl sinni á Kúbu. Sýndar verða myndir frá landinu. Bæði konur og karlar eru velkomin til þessarar samveru sem samkirkjuleg landsnefnd um Alþjóðlegan bænadag kvenna á Íslandi hefur undirbúið.
Starf fyrir 1-4. bekk fellur niður miðvikudaginn 24. febrúar vegna foreldraviðtala í Kársnesskóla. Næst hittist hópurinn miðvikudaginn 3. mars n.k. kl. 14:00 í safnaðarheimilinu Borgum.
Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 28. febrúar n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju kl. 11:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudaginn 21. febrúar næstkomandi verður guðsþjónusta á nokkrum tungumálum. í Kópavogskirkju kl. 11:00. Sr. Toshiki Toma, prestur innflytjenda prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Sigurði Arnarsyni. Lesnir verða ritningarlestrar og beðnar bænir á nokkrum tungumálum. Lesið og beðið verður á: íslensku, þýsku, frönsku, japönsku kúrdísku, persnesku, tékknesku, ensku og fleiri tungumálum. Sungnir verða sálmar frá nokkrum þjóðlöndum. Sunnudagaskólinn hefst að venju kl. 11:00. Eftir guðsþjónustu verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarheimilinu Borgum þar sem sr. Toshiki mun ræða um stöðu innflytjenda á Íslandi og Birte Harksen, deildarstjóri á leiksskólanum Urðarhóli mun meðal annars; segja frá því þegar börn á leiksskólanum sungu á arabísku fyrir sýrlenskan nýnema. Allir hjartanlega velkomnir.
Messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 14. febrúar n.k. kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkju.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
