Æskulýðsfundir
Æskulýðsfundir eru á fimmtudagskvöldum í safnaðarheimilinu Borgum kl. 20:00. Fundirnar hefjast aftur 19. janúar eftir jólafrí. Meðfylgjandi mynd var tekin fimmtudagskvöldið 1. desember af félögum í spurningarkeppni.
Æskulýðsfundir eru á fimmtudagskvöldum í safnaðarheimilinu Borgum kl. 20:00. Fundirnar hefjast aftur 19. janúar eftir jólafrí. Meðfylgjandi mynd var tekin fimmtudagskvöldið 1. desember af félögum í spurningarkeppni.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 4. desember n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Uppskeruhátíð listasmiðju á sunnudögum en meðal annars verður flutt „Kærleikslagið“, sem samið var í smiðjunni. Að lokinni guðsþjónustu verður jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Jólasveinn mætir og gengið í kringum jólatré. Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir.
Síðasta 1-4 bekkjarstarfið fyrir jólafrí verður fimmtudaginn 1. desember n.k. 1-2 bekkur hittist kl. 14:00-15:00 og 3-4 bekkur frá kl. 15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Starfið hefst aftur í þriðju viku janúar á næsta ári. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins hefst að venju kl. 14:30 þriðjudaginn 22. nóvember með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Kl. 15:10 flytur Inga Lára Baldvinsdóttir fyrirlestur um Ljósmyndasafn Íslands. Kl. 15:30 verður drukkið kaffi. Starfinu lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
29. nóvember. Fyrsti sunnudagur í aðventu. Kl. 11:00 Tónlistarmessa. Fluttir verða aðventu- og jólasálmar. Friðarlogi frá skátum afhenntur.
Sóknarprestur, prédikar og þjónar í öllum guðsþjónustum nema annað sé tekið fram. Kór Kópavogskirkju syngur í öllum guðsþjónustum undir stjórn Lenku Mátéová nema annað sé tekið fram. Nánar á www.kopavogskirkja.is
Fermingarfræðsla fyrir allan hópinn verður fimmtudaginn 17. nóvmeber n.k. kl. 19:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Sýnd verður kvikmyndin Málmhaus eftir Ragnar Bragason. Eftir sýningu mun Ragnar fjalla um myndina og viðfangaefni hennar. Sr. Sigurður mun ræða um sorg og sorgarviðbrögð vegna andláta. Foreldrar fermingarbarna eru hvött til að koma til fræðslunnar ásamt sínum unglingum.
Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 20. nóvember kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagssmiðja fyrir börn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Næsta Mál dagsins verður þriðjudaginn 15. nóvember n.k. kl. 14:30 og hefst með samsöng undir stjórn; Lenku Mátéová og Friðriks Karlssonar. Um kl. 15:10 flytur Kristján Schram erindi um hvernig auglýsingar verða til. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
