Barna- og fjölskylduguðsþjónusta, sunnudagaskólinn hefst eftir frí

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 6. september n.k. kl. 11:00.  Þá hefst sunnudagaskólinn aftur eftir frí.  Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum.  Börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.

Mál dagsins

Mál dagsins hefur göngu sína aftur þriðjudaginn 8. september n.k. kl.14:30-16:00

Helgistund 30. ágúst kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Helgistund verður sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Hjördís Perla Rafnsdóttir, guðfræðinemi flytur hugleiðingu. Sr. Sigurður Arnarson leiðir stundina. Félagar úr Kór Kópavogskirkju leiða stundina undir stjórn Peter Maté.

Fundi 23. ágúst vegna ferminga 2021 frestað

Fundi sem átti að vera eftir helgistund 23. ágúst n.k. kl. 11:00 vegna ferminga 2021 er frestað vegna Covid.

Helgistund 23. ágúst kl. 11:00 í stóra sal safnaðarheimilisins.

Helgistund verður 23. ágúst n.k. kl. 11:00 í stóra sal í safnaðarheimilinu Borgum. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og leiðir stundina. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Peter Máté.

Fermingarfræðsla

Síðsumarfermingarnámskeið verður 17. til 19. ágúst, 2020 frá kl. 9:15-12:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Að sjálfsögðu fylgjum við tilmælum Almannavarna vegna Covid 19.

Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með byrjun september, 2020 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar).

Guðsþjónustan sem boðuð var 23. ágúst 2020 n.k. og fundur á eftir verður frestað til haustsins.

Liðsauki

Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, fyrrum sóknarprestur á Djúpavogi mun þjóna Kársnessöfnuði til 1. nóvember n.k., sem prestur við hlið sr. Sigurðar Arnarsonar, sóknarprests. Við bjóðum sr. Sjöfn hjartanlega velkomna til starfa.

Helgistund 16. ágúst kl.11:00 í safnaðarheimilinu

Helgistund verður 16. ágúst kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Lenka Mátéova kantor leiðir tónlist ásamt félögum úr Kór Kópavogskirkju.

Skrifstofan lokuð vegna sumarleyfa

Vegna sumarleyfa verður ekki viðvera á skrifstofu Kópavogskirkju frá 6. júlí til og með 13. ágúst n.k. Hægt er að ná sambandi við sr. Sjöfn Jóhannesdóttur, settan sóknarprest með tölvupósti sjofnjo@simnet.is eða í síma 892 7651. Einnig verður kirkjuvörður Hannes Sigurgeirsson að störfum í sumar, hægt er að ná sambandi við hann með tölvupósti kirkjuvordur@kopavogskirkja.is eða í síma 898 8480. Samstarf er um helgihald í söfnuðum Kópavogs og eru guðsþjónustur í Hjallakirkju kl 11.00 alla sunnudaga í júlí. 2. ágúst verður guðsþjónusta í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum og síðasta guðsþjónustan í sameiginlegu helgihaldi sumarsins verður í Digraneskirkju 9. ágúst.

Helgistund í Digraneskirkju 14. júní kl. 11.00

Sameiginleg helgistund Kópavogs-, Digraness- og Hjallakirkju í Digraneskirkju sunnudaginn 14. júní kl 11.00 Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir settur sóknarprestur Kópavogskirkju leiðir stundina ásamt Sólveigu Sigríði Einarsdóttur organista Digraneskirkju.

Kaffi og kex í safnaðarheimili að lokinni stundinni.