Entries by Sigurður Arnarson

Mál dagins 10. október n.k.

Mál dagsins hefst að venju kl.14:30 þann 10. október n.k. með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Klukkan .15:10 mun Halldór Friðrik Þorsteinsson kynna nýútkoman ferðabók sína um Afríku.  Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi.  Sundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 8. október kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 8. október kl.11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðstprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Sálmar sem sungir verða eru eftir Martein Lúther og umfjöllunarefni prédikunnar verða Marteinn Lúther og Katrín frá Bora.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk.

Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk hefst fimmtudagskvöldið 28. september n.k. kl.19:30-21:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Starfið er sniðið að þörfum unglinga og hugsað, sem hluti af fermingarfræðslu safnaðarins.  Umsjón með starfinu hafa: Gríma og Mirra Ólafsdætur ásamt aðstoðarleiðtogum.

Mál dagsins 26. september

Mál dagins hefst þriðjudaginn 26. september n.k. kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 verður drukið kaffi.  Klukkan 15:30 verður haldið yfir götuna á Gerðarsafn þar sem sýning um stjórnarskrána verður skoðuð.  Stundinni lýkur kl.16:00.  Allir að sjálfsögðu velkomnir.

Haustferð

Haustferð Kársnessafnaðar var farin þriðjudaginn 19. september s.l.  Fyrst var ekið um vesturbæ Reykjavíkur undir leiðsögn sr. Sigurðar Arnarsonar.  Veröld hús stofnunnar Vigdísar Finnbogadóttur var heimsótt.  Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands tók á móti hópnum og fræddi um starf H.Í.  Síðan var húsið skoðað og sýning um Vigdísi.  Í hádeginu var snæddur hádegisverður á […]