Entries by Sigurður Arnarson

Mál dagsins 1. október

Mál dagsins er vikulega á þriðjudögum í vetur frá kl. 14:30-16:00. Í „Máli dagsins“ þriðjudaginn 1. október mun stundin hefjast að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 mun Helgi Helgason, fyrrverandi kennari flytja erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Allir […]

Umhverfismessa

Messan 29. september verður tileinkuð umverfismálum. Helena Óladóttir, umhverfisfræðingur og kennari flytur hugleiðingu. Sóknarprestur þjónar fyrir altari. Óskar H. Níelsson, sóknarnefndarmaður les ritningarlestra. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sálmar, ritningartextar og bænir fjalla um umhverfið. Kaffisopi á eftir í kirkjunni.

Guðsþjónusta 23. september kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. september kl. 11:00. Sr. Sighvatur Emil Karlsson, settur héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Hrafnkels Karlssonar. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.

Frá fermingarbarni

FERMINGARFRÆÐSLAN 19. – 22.ágúst 2019 19. ágúst Dagur 1 Í fyrsta tímanum fórum við í nafnaleik með Sigga og Ástu.  Þannig gátu þau betur lært nöfnin okkar. Eftir leikinn fór Siggi yfir bækurnar sem við notum í fræðslunni fyrir ferminguna og að lokum sögðu þau okkur frá starfi prestsins og djáknans, en presturinn getur t.d. […]

Útvarpsguðsþjónusta 15. september kl. 11:00

Sunnudaginn 15. september n.k. er “Dagur kælreiksþjónustu” í kjunni.  Í útvarpsguðsþjónustu kl. 11:00 í Kópavogskirkju mun Ásta Ágústsdóttir, djákni prédika og sr. Sigurður Arnarson þjóna fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur.