Karlakaffi þriðjudaginn 6. maí

Karlakaffi Kópavogskirkju mætir aftur til leiks núna á þriðjudaginn 6. maí kl 10.30-11.45. Í þetta sinn koma framkvæmdastjóri og markaðsstjóri Sky Lagoon í heimsókn og segja frá starfsemi Skylagoon, stöðu þess á Kársnesinu, áhrif starfseminnar á nærsamfélagið og álit þess á skipulagsmálum bæjarins og framtíðarsýn. Kaffi, kruðerí og spjall.