Mál dagins 7. nóvember

Mál dagsins 7. nóvember n.k. hefst að venju kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 munu þeir dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson og Halldór Sighvatsson flytja jazztónlist.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og lýkur stundinni kl.16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

„Jól í skókassa“

Nýverið heimsótti hópur frá KFUM og K í Úkraínu og á Íslandi „Mál dagsins“ í safnaðarheimilinu Borgum og einnig unglinga í æskulýðsstarfi Kópavogskirkju.  Kynnti hópurinn „Jól í skókassa“, sem er alþjóðlegt verkefni og felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja börn, sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.  Með slíkum gjöfum er þeim sendur kærleikur Guðs í verki.  Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að börnin fái svipaðar gjafir er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.  Skókassarnir verða sendir til Úkraínu þar sem búa um 46 milljónir.  Atvinnuleysi er mikið og ástandið víða bágborið.  Íslensku kössunum verður meðal annars: dreift á: munaðarleysingjarheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra, sem búa við sára fátækt.  Kirkjan í Úkraínu er rússnesk rétttrúnaðarkirkja en KFUM og K í Úkranínu starfar innan þeirrar kirkjudeildar.  Aðalskipuleggjandi dreifingarinnar í Úkraínu er faðir Evheniy Zhabokovskiy sem kom með hópnum að þessu sinni.Jól í skókassa hópur frá KFUM í Úkranínu og á Íslandi

Húnvetningaguðsþjónusta

Húnvetningaguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju 5. nóvember n.k. kl.14:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Húnvetningakórinn syngur undir stjórn Eiríks Grímssonar.  Allir hjartanlega velkomnir.

Allra heilagra messa, sunnudaginn 5. nóvember kl.11:00

Í guðsþjónustu kl.11:00 í Kópavogskirkju sunnudaginn 5. nóvember n.k. verður beðið fyrir þeim með nafni sem sóknarprestur Kópavogskirkju hefur jarðsungið frá 20. október 2016 til 20. október 2017.  Ásta Ágústsdóttir, djákni mun prédika og þjóna fyrir altari ásamt sr. Sigurði Arnarsyni.  Flutt verður tónlist í kirkjunni frá kl. 10:30 og getur fólk tendrað á ljósi til minningar um látna ástvini.  Kór Kópavogskirkju mun syngja í guðsþjónustunni undir stjórn Lenku Mátéová.  Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffisopa í safnaðarheimilinu Borgum og þar mun sr. Sigurður Arnarson flytja stutt erindi um „Sorg og sorgarviðbrögð“.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 31. október

Mál dagsins þann 31. október hefst að venju kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl.15:10 mun sr. Hreinn Hjartarson fjalla um borðræður Marteins Lúthers.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi.  Fulltrúar verkefnisins „Jól í skókassa“ mun heimsækja „Mál dagsins“ ásamt hópi gesta frá Úkraínu.  Allir hjartanlega velkomnir.

Sunnudagaskólinn

Sunnudagaskólinn er á hverjum sunnudegi kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Söngur og fræðsla fyrir börn um kristna trú.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 29. október kl.11:00

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 29. október n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir atlari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátóvá, kantors.

Mál dagsins 24. október

Mál dagins þann 24. október n.k. hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 segir Sigurður Ólafur Sigurðsson, ljósmyndari frá störfum sínum við að mynda björgunarfólk að störfum.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Tónlistarmessa 22. október

Tónlistarmessa verður 22. október kl.11:00 í Kópavogskirkju.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagins 10. október n.k.

Mál dagsins hefst að venju kl.14:30 þann 10. október n.k. með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Klukkan .15:10 mun Halldór Friðrik Þorsteinsson kynna nýútkoman ferðabók sína um Afríku.  Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi.  Sundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.