Mál dagsins 24. október

Mál dagins þann 24. október n.k. hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 segir Sigurður Ólafur Sigurðsson, ljósmyndari frá störfum sínum við að mynda björgunarfólk að störfum.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.