Magús „frater“

Þriðjudaginn 3. maí n.k. verður Mál dagsins í safnaðarheimilinu Borgum.  Stundin hefst að venju kl.14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Um kl.15:10 heldur Auðólfur Gunnarsson, læknir erindi um Magnús „frater“.  Um kl.15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Málun hafin á Kópavogskirkju

Mánudaginn 25. apríl hófust Már Guðmundsson, málarameistari og samverkamenn hans við að mála Kópavogskirkju að utan.  Vonast er til að verkinu ljúki hið fyrsta.image-20

Messa 1. maí

Messa verður sunnudaginn 1. maí n.k. í Kópavogskirkju kl. 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Til messunar eru boðuð sérstaklega fermingarbörn vorsins 2017 og foreldrar þeirra.  Eftir messu verður stuttur fundur í kirkjunni um fermingarstarfið framundan.

Mál dagsins 26. apríl, 2016

Að venju hefst Mál dagsins kl. 14:30 í safnaðarheimilinu Borum með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Um kl. 15:10-15:30 munu félagar í Bókmenntaklúbbnum Hana – nú lesa ljóð. Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.   Félagar í klúbbnum sem lesa eru:

UPPLESTUR

félaga í Bókmenntaklúbbi Hana – nú í Borgum, safnaðarheimili Kópavogskirkju, þriðjudaginn 26. apríl 2016 – sem Mál dagsins.

Lesinn verður ljóðaflokkur eftir Guðmund Böðvarsson: 1974

Þeir sem lesa hann eru

1. Sigurlaug Sigurðardóttir

2. Hermann Guðmundsson

3. Hulda Jóhannesdóttir

4. Þóra Elfa Björnsson

5. Lúðvík A. Halldórsson

6. Margrét Guðmundsdóttir

7. Valborg E. Baldvinsdóttir

8. Olga Ólafsdóttir

9. Auður Jónsdóttir

10. Elísabet Stella Sveinsdóttir

11. Hrafn A. Harðarson

12. Sigurður Flosason

Aðrir sem lesa ljóð að eigin vali:

Arnhildur Jónsdóttir

Kristjana H. Guðmundsdóttir

Geirlaug Egilsdóttir

Sigurður Kjartansson

Unnur Kristinsdóttir

 

Guðsþjónusta 24. apríl kl.11:00

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 24. apríl n.k. kl.11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.Sandra Kangzhu spilar á koto – kínversk hljóðfæri frá kl 10.45 – 11. Þjóðlagahópur frá Tónlistarskóla Kópavogs spilar í upphafi guðsþjónustu.Barnakór frá rússneska félaginu syngur eftir prédikun.

Tónlistarveisla

Tónlistarveisla vor 16

Uppskeruhátíð barnastarfsins

Sunnudaginn 17. apríl var barna- og æskulýðsguðsþjónusta í Kópavogskirkju.  Skólakór Kársnes söng undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.  Hljómsveit sunnudagaskólakennurum lék.  Að lokinni guðsþjónustu var uppskeruhátíð barnastarfsins, þar sem boðið var upp á pylsur og hoppukastala.  Meðfylgjandi myndir voru teknar.image-14 image-15 image-16 image-17 image-18 image-19

Kirkjuvörður – hlutastarf

Kársnessöfnuður óskar eftir að ráða í starf kirkjuvarðar Kópavogskirkju frá og með 1. júní n.k.

Um hlutastarf er að ræða, 60 prósent starfshlutfall með sveigjanlegum vinnutíma. Möguleiki er á að tveir gegni starfinu.

Starfssvið:

• Dagleg umsjón með kirkju og safnaðarheimili • Umsjón með búnaði
• Þjónusta við helgihald
• Þrif

• Önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við sóknarprest og sóknarnefnd

Hæfniskröfur:

• Þjónustulund, snyrtimennska og sveigjanleiki
• Færni í mannlegum samskiptum
• Þekking og áhugi á starfi og hlutverki kirkjunnar

Rík áhersla er lögð á trúmennslu í starfi og metnað til þess að takast á við mismunandi verkefni. Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2016 nk. Umsóknir sendist rafrænt á netfangið: kopavogskirkja@ kirkjan.is

Umsækjendur sendi inn ferilsskrá þar sem fram koma: persónulegar upplýsingar, menntun, starfsferill, með- mælendur og annað sem umsækjendur vilja að komi fram. Athuga skal að liggja þarf fyrir samþykki umsækj- enda til að afla sakavottorðs.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu safnaðarins af sóknarpresti eða djákna, sími 5541898 virka daga á milli 11:00-13:00 eða með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta og uppskeruhátíð barnastarfsins

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju 17. apríl n.k.  Sr. Sigurður Arnarson, Ásta Ágústsdóttir og starfsfólk sunnudagskólans leiða stundina.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.  Hljómsveit tekur þátt.  Eftir guðsþjónustuna verður uppskeruhátíð barnstarfsins við safnaðarheimilið Borgir.  Boðið verður upp á grillaðar pylsur og hoppukastalar verða á svæðinu.   Allir hjartanlega velkomnir.

Kirkjustarf fyrir 1-4 bekk

Miðvikudaginn 13. apríl verður kirkjustarf fyrir 1-4 bekk í síðasta skipti á þessu vori.