Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta og messukaffi 09/05/24maí 6, 2024 - 9:45 f.h.
- Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.11:00, 5/5/24maí 3, 2024 - 9:31 e.h.
- Upplýsingar vegna fermingafræðslu og ferminga vorið 2025apríl 29, 2024 - 9:14 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurapríl 28, 2024 - 9:11 e.h.
- Mál dagsins 23/4/24apríl 22, 2024 - 12:48 e.h.
Beðið eftir jólunum, fjölskyldustund á aðfangadag kl. 15:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFjölskyldustund í Kópavogskirkju kl. 15:00 á aðfangadag. Jólaguðspjallið og jólasálmar sungnir. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 18. desember
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður 18. desember n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Kirkjuhlaup í Kópavogi
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonKirkjuhlaup í Kópavogi verður miðvikudaginn 14. desember n.k. kl. 17:30 frá Hjallakirkju. Sungin verður jólasálmur og svo lagt af stað. Hlaupið er í samvinnu við Þríkó hópinn í Breiðabliki. Boðið er upp á 7 km eða 11 km leið á milli kirkna og kapella í Kópavogi. Að loknu hlaupi er boðið upp á hlaupavænar veitingar í Hjallakirkju. Ekkert þátttökugjald og allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 13. desember
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins þann 13. desember hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 munu prestarnir Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Guðmundur Karl Brynjarsson segja frá nýútgefnum bókum sínum. Kl. 15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00. Næsta Mál dagsins eftir jólafrí verður svo þriðjudaginn 17. janúar. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 6. desember
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefst þriðjudaginn 6. desember n.k. kl.14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 flytur Pétur Einarsson fyrirlestur um heimildarmyndina „Rannsaked“ og svarar fyrirspurnum. Um kl.15:30 er drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Jólaball
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMeðfylgjandi myndir voru teknar á jólaballi Kársnessafnaðar 4. desember.
Aðventutónleikar Kórs Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður Arnarson„Kom engill til mín“. Miðvikudagur 7. desember kl. 20:00-21:00.Aðventutónleikar Kórs Kópavogskirkju í safnaðarheimilinu Borgum. Fjölbreytt hátíðleg og hlýleg aðventu- og jólalög flutt. Stjórnandi Lenka Mátéová. Meðleikari Peter Máté. Engin aðgangseyrir og boðið upp á heitt kakó og smákökur eftir tónleika.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta og jólaball
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 4. desember n.k. og hefst kl. 11:00. Sungið verður meðal annars; „Kærleikslagið“ úr sunnudagasmiðju. Skólakár Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Á eftir verður jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Dansað kringum jólatré og von er á rauðklæddum gestum. Enginn aðgangseyrir og allir hjartanlega velkomnir.
Æskulýðsfundir
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÆskulýðsfundir eru á fimmtudagskvöldum í safnaðarheimilinu Borgum kl. 20:00. Fundirnar hefjast aftur 19. janúar eftir jólafrí. Meðfylgjandi mynd var tekin fimmtudagskvöldið 1. desember af félögum í spurningarkeppni.
Prjónahópur
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMeðfylgjandi mynd var tekin 1. desember af Prjónahóp í safnaðarheimilinu Borgum. Hópurinn hittist annan hvorn fimmtudag í safnaðarheimilinu Borgum.