Guðsþjónusta 19. mars

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 19. mars n.k. kl. 11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Kærleikssmiðja á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 14. mars

Mál dagsins 14. mars n.k. hefst með samsöng kl. 14:30 í safnaðarheimilinu Borgum undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Kl. 15:10 flytur Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla erindi um skólann.  Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Æskulýðsdagurinn 5. mars kl. 11:00 í Kópavogskirkju

Á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar verður barna- og fjölskyldusamvera í Kópavogskirkju kl. 11:00.   Félagar úr Skólakór Kársnes syngja og félagar úr Kærleikssmiðju Kópavogskirkju taka einnig þátt.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 26. febrúar kl.11:00 fellur niður vegna ófærðar

Guðsþjónusta 26. febrúar kl.11:00 fellur niður í Kópavogskirkju vegna ófærðar.

Breyttur tími fyrir hádegisbænir frá og með 6.mars

Hádegisbænir, sem hafa verið í Kópavogskirkju á þriðjudögum kl. 12:10 færast frá og með 6. mars til kl. 13:45 einnig á þriðjudögum.  Hægt er að koma fyrirbænaefnum með því að senda tölvupóst á kopavogskirkja@kirkjan.is eða á skrifstofutíma (virka daga á milli 9-13) í síma:5541898.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 28. febrúar

Mál dagsins verður þriðjudaginn 28. febrúar n.k. kl. 14:30-16:00.  Starfið hefst með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar.  Um kl. 15:10 heldur Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Póstins erindi.  Kl. 15:30 er drukkið kaffi.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 26. febrúar

Guðsþjónusta verður 26. febrúar n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Félagar úr Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátévoá.  Kærleikssmiðja fyrir börn hefst á sama tíma kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.

Mál dagsins

Þriðjudaginn 21. febrúar n.k. verður Mál dagsins í safnaðarheimili Kópavogskirkju.  Starfið hefst kl. 14:30 með hópsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:10 flytur sr. Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur erindi.  Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir að sjálfsögðu velkomnir.

Kærleikssmiðja

Kærleikssmiðja fyrir börn verður í safnaðarheimili Kópavogskirkju, sunnudaginn 19. febrúar kl. 11:00.  Unnið er með dæmisöguna af miskunnsama samverjanum út frá ýmsum listformum.

Guðsþjónusta 19. febrúar

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 19. febrúar kl.11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová.