Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta og messukaffi 09/05/24maí 6, 2024 - 9:45 f.h.
- Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.11:00, 5/5/24maí 3, 2024 - 9:31 e.h.
- Upplýsingar vegna fermingafræðslu og ferminga vorið 2025apríl 29, 2024 - 9:14 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurapríl 28, 2024 - 9:11 e.h.
- Mál dagsins 23/4/24apríl 22, 2024 - 12:48 e.h.
Guðsþjónusta 9. september n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 9. september kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimlinu Borgum.
Fyrirbænir
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFyrirbænir eru á hverjum þriðjudegi kl. 13:45 í Kópavogskirkju. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefur aftur göngu sína í haust, n.k. þriðjudag 4. september kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 er flutt erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Vorvísur að hausti
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta 2. september, upphaf Sunnudagaskólans
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður 2. september n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju. Sunnudagaskólinn hefur göngu sína aftur eftir sumarfrí. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 26. ágúst kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 26. ágúst n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Fermingarstarfið
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSíðsumarnámskeið verður 20. til 22 ágúst, 2018 frá kl. 9:15-13:30 í safnaðarheimilinu Borgum (20. ágúst lýkur fræðslunni kl. 12:10 í stað 13:30). Gott væri að fermingarbörnin kæmu með nesti með sér á hverjum fræðsludegi. Vetrarfermingarfræðsla verður vikulega næsta vetur frá og með september, 2018 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar). Messur kl. 11:00 þann 19. ágúst 2018 og 20. janúar 2019 og fundur með foreldrum eftir messu (messað verður næsta sunnudag það er 19. ágúst í Kópavogskirkju þrátt fyrir viðamiklar endurbætur þar um þessar mundir). Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi ef því verður ekki komið væri vel þegið að einhver fulltrúi þeirra kæmi í staðinn í messu og á fundinn á eftir, sem verður stutter. Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp) verða kynntir í haust.
Messa 19. ágúst n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa verður í Kópavogskirkju n.k. sunnudag 19. ágúst kl. 11:00. Á eftir guðsþjónustu verður stuttur fundur í kirkjunni um fermingarstarfið framundan. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
Messa 12. ágúst kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMessa verður verður sunnudaginn 12. ágúst n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Sr. Sunna Dóra Möller prédikar og þjónar fyrir altari.
Guðsþjónsta 5. ágúst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSr. Dís Gylfadóttir prédikar og þjónar fyrir altari.