Sunnudagaskóli 15. október kl.11:00

Sunnudagaskóli verður í safnaðarheimilinu Borgum, sunnudaginn 15. október næstkomandi klukkan 11:00.  Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 15. október kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 15. október n.k. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Sunnudagaskóli

Sunnudagaskólinn er á sunnudögum kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 8. október kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 8. október kl.11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðstprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Sálmar sem sungir verða eru eftir Martein Lúther og umfjöllunarefni prédikunnar verða Marteinn Lúther og Katrín frá Bora.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.

Æskýðsfundir fyrir 8. bekk

Æskulýðsfundir fyrir áttunda bekk eru á fimmtudagskvöldum kl. 19:30-21:00 í safnaðarheimilinu Borgum.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 1. október kl.11:00

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 1. október n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.  Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni.

Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk.

Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk hefst fimmtudagskvöldið 28. september n.k. kl.19:30-21:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Starfið er sniðið að þörfum unglinga og hugsað, sem hluti af fermingarfræðslu safnaðarins.  Umsjón með starfinu hafa: Gríma og Mirra Ólafsdætur ásamt aðstoðarleiðtogum.

Mál dagsins 26. september

Mál dagins hefst þriðjudaginn 26. september n.k. kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 verður drukið kaffi.  Klukkan 15:30 verður haldið yfir götuna á Gerðarsafn þar sem sýning um stjórnarskrána verður skoðuð.  Stundinni lýkur kl.16:00.  Allir að sjálfsögðu velkomnir.

Haustferð

Haustferð Kársnessafnaðar var farin þriðjudaginn 19. september s.l.  Fyrst var ekið um vesturbæ Reykjavíkur undir leiðsögn sr. Sigurðar Arnarsonar.  Veröld hús stofnunnar Vigdísar Finnbogadóttur var heimsótt.  Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands tók á móti hópnum og fræddi um starf H.Í.  Síðan var húsið skoðað og sýning um Vigdísi.  Í hádeginu var snæddur hádegisverður á Hótel Natura og Pétur Johnsson og Arngrímur Jóhannsson, fræddu viðstadda um sögu flugs hér á landi.  Síðan var haldið að Gljúfrasteini í MosfellssdalSafnaðarferð Pétur og Addú Safnaðarferð rektorSafnaðarferð HvirfillSafnaðarferð Magga og húsið skoðað.  Bjarki Bjarnason, fræddi hópinn svo um Mosfellsdal og heimsótt var Gallery Hvirfill í eigu Þóru Sigþórsdóttur, kermik listamanns.  Ferðinn lauk svo með heimsókn í Mosfellskirkju.

Sunnudagaskólinn 24. september kl.11:00

Sunnudagaskóli verður 24. september kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Starfsmenn sunnudagaskólans í vetur eru: Birgir, Gríma, Anna Lovísa og Jóhanna.  Allir hjartanlega velkomnir.