Entries by Lilja Katrín Gunnarsdóttir

Birting

Birting er samsýning á verkum eftir íslenska samtímalistamenn sem unnin eru út frá steindum gluggum Gerðar Helgadóttur (1928-1975) í Skálholtskirkju, Kópavogskirkju og víðar. Sýningunni er ætlað að vekja okkur til umhugsunar um staði á borð við söfn og kirkjur og þær athafnir sem þessum stöðum fylgja. Hvort sem um er að ræða formlegar, lágstemmdar eða […]

Guðsþjónusta á Uppstigningardegi

Á Uppstigningardegi 14. maí kl.14:00 verður guðsþjónusta í Kópavogskirkju á degi aldraðra í Þjóðkirkjunni. Sr. Sveinn Valgeirsson, prestur í Dómkirkjunni prédikar og sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur Kópavogskirkju þjónar fyrir altari. Félagar úr karlakórnum Mosfellsbræður og kvennasönghópurinn “Boudoair” syngja. Kórstjórar eru: Julian Hewlett og Kristín Sigurðardóttir. Á eftir guðsþjónustu býður sóknarnefnd Kársnessóknar upp á kaffi og […]

Helgihaldið í sumar í Kópavogskirkju

Guðsþjónustu- og messuskrá í Kópavogskirkju, sumarið 2015 10. maí, kl.11:00 Tónlistarmessa Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt djákna Aðalsafnaðarfundur eftir messu 14. maí, kl.14:00 Guðsþjónusta Uppstigningardagur. Sr. Sveinn Valgeirsson prédikar Dagur eldri borgara í Þjóðkirkjunni 17. maí, kl.11:00 Guðsþjónusta Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari 24. maí, kl.11:00 Hátíðarguðsþjónusta Hvítasunnudagur. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson […]

Mál dagsins 5. maí n.k.

Mál dagsins hefst klukkan 14:30 fimmta maí n.k. Samsöng stjórnar Friðrik Kristinsson. Klukkan 15:10 heldur Gunnar Örn Arnarson, stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni um störf sín. Kaffi er drukkið kl.15:30 og stundinni lýkur með stuttri helgistund kl. 16:00. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 3. maí n.k.

Guðsþjónusta með óhefðbundu sniði verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 3. maí, klukkan 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, hérðastprestur prédikar og þjónar fyrir altari. “Gosukórinn” syngur undir stjórn Lindu Cardrew. Nemendur úr Gítarstofu Steingríms flytja tónlist.

Óskilamunir

Þó nokkuð af fatnaði hefur safnast upp undanfarin ár. Meðfylgjandi myndir voru teknar af munum á uppskeruhátíð barna- og æskulýðsstarfsins 26. apríl sl. Um miðjan maímánuð verður munum, sem ekki er búið að vitja, komið til Hjálparstarfs kirkjunnar. Skrifstofa Kópavogskirkju, sem staðsett er í safnaðarheimilinu Borgum er opin virka daga á milli 09:00-13:00.