Entries by Lilja Katrín Gunnarsdóttir

Opið hús hjá Birtu – Landssamtökum

Birta – Landssamtök standa fyrir opnu húsi þriðjudaginn 16. desember kl 20:00 í Grafarvogskirkju. Gestir kvöldsins verða tveir, en það eru þær: Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur, sem mun fjalla um streitu aðstandenda í kjölfar skyndidauða. Margrét    starfar nú um stundir sem sjálfstæður meðferðaraðili  en hún hefur langa reynslu af störfum í nálægð dauðans, m.a. við […]

Mozart við kertaljós

Kópavogskirkju, laugardagskvöldið 20. desember kl. 21:  Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin.  Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í tuttugu og tvö ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur […]

Samvera á aðventu fyrir syrgjendur

Grafarvogskirkju 18. desember kl. 20.  Oft er erfitt að horfa fram til jóla þegar ástvinur hefur fallið frá. Samveran er sérstaklega hugsuð til að styðja fólk í  þessum aðstæðum.  Jólasálmar. Hamrahlíðarkórinn. Hugvekja: sr. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Minningarstund. Kirkjugestir geta tendrað ljós og minnst þannig látinna ástvina sinna. Samveran er túlkuð á táknmál. Léttar veitingar […]

Mál dagsins 16. desember n.k.

Mál dagsins 16. desember n.k. hefst kl 14:30 með samsöng.  Síðan mun börn af elstu deild leiksskólans Marbakka syngja.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.  Mál dagsins hefst aftur eftir jólafrí þriðjudaginn 13. janúar 2015.

Jólasöngvar Kórs Kópavogskirkju

Miðvikudagur. 10. desember, kl. 20:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, „Borgum“.  Jólasöngvar Kórs Kópavogskirkju með þátttöku Kiwanisklúbbsins Dyngju. Flytjendur: Kór Kópavogskirkju, Hafdís Vigfúsdóttir flauta, Peter Máté píanó, einsöngvarar úr röðum kórfélaga, stjórnandi Lenka Mátéová.

Helgileikur í Kópavogskirkju

Annan sunnudag í aðventu þann 7. desember síðastliðinn sýndu elstu nemendur leiksskólans Kópasteins helgileik í barna- og fjölskylduguðsþjónustu í Kópavogskirkju. Félagar úr 5. bekk Kársnesskóla sungu undir stjórn Elínar Halldórsdóttur. Á eftir guðsþjónustunni var jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Gengið var í kringum jólatré og Gluggagægir heimsótti ballið.