Mál dagsins og Karlakaffi 7/04/26

Kópavogskirkja fer fjörlega af stað fyrsta þriðjudag eftir páska, 7. apríl
💐Kl 10.30- Karlakaffi í safnaðarheimilinu. Óttar Sveinsson höfundur “útkallsbókanna” kemur og segir frá sínum mest spennandi viðfangsefnum. Kaffi og meðlæti.
💐Kl. 12.15- Bænastund í kirkjunni. Tónlist og fyrirbæn.
💐Kl. 14.30- Mál dagsins. Þórunn Björnsdóttir leiðir samsöng. Óli Gränz og Guðni Einarsson blaðamaður koma og segja frá hispurslausri ævisögu Óla sem kom út fyrir skemmstu. Sjáumst á þriðjudag!

Mál dagsins 24/03/26

Mál dagsins þriðjudaginn 24. mars í safnaðarheimili Kópavogskirkju.  Þórunn Björnsdóttir leiðir samsöng og Grétar Halldór Gunnarsson segir frá Heilsustofnuninni í Hveragerði. Verið velkomin!