Helgihaldsdagskrá frá apríl – september 2024


Dagseting Klukkan Guðsþjónusta/ Messa Annað
7. apríl 11:00 Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
14. apríl 11:00 Guðsþjónusta
21. apríl 11:00 Guðsþjónusta
28. apríl 11:00 Guðsþjónusta Fundur á eftir vegna ferminga 2025
5. maí 11:00 Barna- og fjöskylduguðsþjónusta Uppskeruhátíð barna- og æskulýðstarfs
9. maí 14:00 Guðsþjónusta Uppstigningardagur
12. maí 11:00 Guðsþjónusta
19. maí 11:00 Hvítasunnudagur
26. maí 11:00 Guðsþjónusta
2. júní 11:00 Guðsþjónusta Sjómannadagur
9. júní 11:00 Guðsþjónusta
16. júní 11:00 Helgistund
23. júní 11:00 Helgistund
30. júní 11:00 Helgistund
7. júlí 11:00 Helgistund
14. júlí 11:00 Helgistund
21. júlí 11:00 Helgistund
28. júlí 11:00 Helgistund
11. ágúst 11:00 Helgistund
18. ágúst 11:00 Guðsþjónusta
25. ágúst 11:00 Guðsþjónusta Fundur á eftir vegna ferminga
1. september 11:00 Barna- og fjölskylduguðsþjónusta
8. september 11:00 Guðsþjónusta
15. september 11:00 Guðsþjónusta
22. september 11:00 Guðsþjónusta
29. september 11:00 Guðsþjónusta

Vetrarhátíð í Kópavogi

Sviðsmyndir er nýtt ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur, gert sérstaklega fyrir Kópavogskirkju á Vetrarhátíð í Kópavogi 2024.
_______________
Verkið Sviðsmyndir er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju. Það er byggt upp af fimm sviðsmyndum sem voru lýstar upp og kvikmyndaðar. Sviðsmyndirnar eru: Málverk, Tveir glerskúlptúrar, Lagskipt glerverk, Bókverk og Teikningar á lituðu gleri.
Sviðmyndirnar byggja á samhverfum og lagskiptum formum kirkjunnar, skynjuðum skala og steindum kirkjugluggum Gerðar Helgadóttur sem birtast sem hreyfing ljóss og lita inni í byggingunni sjálfri.
Verkið Sviðsmyndir er í grunninn unnið á handvirkan hátt, efniviðurinn er ljós, hreyfing, litað gler og pappír. Öll stafræn eftirvinnsla og klipping er trú upptökunum. Að því leyti er verkið mjög handvirkt (analogue) og hefur skírskotun til marglaga birtingarmynda ljóss og efnis og hreyfinga handanna.
Tökumaður og aðstoð við lýsingu: Sigurður Unnar Birgisson.
Sviðsmyndum verður varpað á Kópavogskirkju föstudagskvöldið 2. febrúar frá 18:30 – 24:00 og laugardagskvöldið 3. febrúar frá 18:30 – 24:00.
_______________
Eygló Harðardóttir er fædd í Reykjavík 1964. Á ferlinum hefur hún haldið fjölda sýninga og hlaut hún Íslensku myndlistarverðlaunin 2019 fyrir einkasýninguna „Annað rými” sem haldin var í Nýlistasafninu 2018.
Eygló vinnur gjarnan tví- og þrívíða abstraktskúlptúra, bókverk og verk í almenningsrými. Sköpunarferlið einkennist af rannsóknum og könnun á aðstæðum og efni, þar sem möguleikar og takmarkanir eru kortlagðar og auðkenni þess rannsökuð. Eftir standa verk sem eru afsprengi ferlis þar sem efnið hefur ráðið för.
Hún hefur einnig unnið í samstarfi við tónskáld og í ýmsa miðla. Verk hennar eru varðveitt í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Ríkisútvarpinu, WSW NY, Kultuurikauppila í Finnlandi og The Metropolitan Museum NY.
Eygló hélt nýverið stóra einkasýningu í Ásmundasal og var einn tíu listamanna sem sýndi verk á sýningunni Skúlptur/Skúlptúr sem lauk 7. janúar síðastliðið.