Ganga um Borgarholtið
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSpennandi fjölskylduferð á laugardaginn með Sólrúnu Harðardóttur kennara og líffræðingum af Náttúrufræðistofu Kópavogs þar sem undraveröld Borgarholtsins verður skoðuð. Gangan hefst við Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 13 og varir í um 50 mínútur.
Öll hjartanlega velkomin og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.
https://www.facebook.com/events/791622095419519?ref=newsfeed
Vorvísur að hausti – Kórtónleikar
/in Fréttir, Frontpage Article, Images, News/by Grétar Halldór GunnarssonStarf fyrir börn í 1-2 bekk
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonKirkjustarf fyrir börn í 1-2.bekk hefst aftur 12. september n.k.
Kópavogskirkja er með spennandi og skemmtilegt kirkjustarf fyrir börn í 1.-2. bekk og fer starfið fram í safnaðarheimilinu Borgum á mánudögum frá 15:30-16:30.
Börnin syngja til dæmis: saman og læra um kristileg gildi. Einnig er farið í leiki, spilað, föndrað og perlað svo fátt eitt sé nefnt.
Boðið er upp á að sækja börnin í Vinahól/Frístund Kársneskóla og svo geta foreldrar náð í þau í safnaðarheimilið kl. 16:30 þegar starfinu lýkur. Ef óskað er eftir að náð sé í börnin í Frístund/Vinarhól þarf að hafa samband við þau og einnig að senda tölvupóst á netfangið: kopavogskirkja@kirkjan.is
Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
Kópavogskirkja – Guðsþjónusta 31. maí kl.11:00maí 30, 2026 - 3:04 e.h.
Guðsþjónusta Hvítasunnudaginn 24/05/26maí 22, 2026 - 9:48 f.h.
Þjóðmálakaffi 19. maímaí 17, 2026 - 12:45 e.h.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju 17. maí kl.11:00maí 15, 2026 - 8:14 e.h.
Uppstigningardagur 14/05/26 kl. 14.00maí 12, 2026 - 2:30 e.h.

















