Fermingarguðsþjónusta 22. ágúst

Fermingarguðsþjónusta fyrir Kársnessöfnuð verður í Hjallakirkju (nú fara fram endurbætur á Kópavogskirkju og kirkjan lokuð vegna þess) sunnudaginn 22. ágúst kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.

Fermingar í ágúst, 2021

Fermt verður sunnudaginn 22. ágúst kl.11:00 í Hjallakirkju og þann 29. ágúst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (skáhalt gengt Gerðarsafni).
Æfingar fyrir fermingar eru sem hér segir:
Föstudaginn 20. ágúst kl. 16:00-17:00 í Hjallakirkju (ekki 10:00 eins og var búið að auglýsa) fyrir þau sem fermast 22. ágúst og
Föstudaginn 27. ágúst kl.16:00-17:00 í safnaðarheimilinu Borgum fyrir þau sem fermast 29. ágúst.
Fermingarbörn skulu mæta í Hjallakirkju (22. ágúst) og í safnaðarheimilið Borgir (29. ágúst) kl. 10:30.
Upplýsingar um sóttvarnir má finna á vef Heilbrigðisráðuneytisins. Allar takmarkanir ná til landsins alls og almenna reglan um fjöldatakmörkun er 200 manns. Minnum á persónubundnar sóttvarnir.Grímuskylda er innandyra þar sem ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Skráning þátttakenda á allar athafnir og viðburði er í gildi, og fer hún fram fyrir athöfnina í Hjallakirkju þann 22. ágúst n.k. og í anddyri safnaðarheimilisins Borga sunnudaginn 29. ágúst. n.k. Ákvæði um fjöldatakmörkun og nálægðartakmörkun taka ekki til barna sem fædd eru 2016 og síðar.
Grímuskylda á ekki við börn sem fædd eru 2006 og síðar.

Breyttir tímar vegna sumarfermingarfræðslu

Síðssumarsfræðsla – Breyttir tímar

Síðsumarnámskeið verður föstudaginn 20. og  mánudaginn 23. ágúst, 2021 frá kl. 9:00 – 15:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  

Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með 6. september, 2021 kl:16:15 – 17:00 í safnaðarheimilinu Borgum. 

Þau sem eiga eftir að skrá sig í fræðsluna eru beðin um að gera það við fyrsta tækifæri (kopavogskirkja@kirkjan.is).

     Tvær kynningarguðsþjónustur og upplýsingafundir verða 3. október, 2021 og 30. janúar 2022 og upplýsingafundir með foreldrum og fermingarbörnum strax á eftir.  Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi í guðsþjónusturnar og á upplýsingafundina. 

Þann 29. september, 2021 verður farið í dags fermingarfræðsluferð í Vatnaskóg. 

 

Helgistund 15. ágúst 2021 kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Helgistund verður í safnaðarheimili Kópavogskirkju, sunnudaginn 15. ágúst n.k. kl.11:00. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, leiðir stundina og Peter Máté, annast tónlist.

Helgistund 1. ágúst kl.11:00. Sögufélagið leiðir gögnu um umhverfi kirkjunnar. Kaffisopi á eftir

Helgistund verður sunnudaginn 1. ágúst n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (úti ef veður leyfir). Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari og prédikar. Lára Bryndís Eggertsdóttir annast tónlistarflutning. Að stundinni lokinni (um kl.11:35) mun Sögufélag Kópavogs leiða göngu um nágrenni Kópavogskirkju. Að göngu lokinni verður boðið upp á kaffi og kleinur í safnaðarheimilinu Borgum.

Helgistund 30. maí kl.11.00 í safnaðarheimilinu Borgum

Helgistund verður í safnaðarheimilinu Borgum sunnudaginn 30. maí n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors.

Hátíðarhelgistund á Hvítasunnudegi kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Hátíðarhelgistund á Hvítasunnudag 23. maí kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, þjónar fyrir altari og félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.

Vegna ferminga í Kópavogskirkju, vorið 2022

Vegna ferminga í Kópavogskirkju, vorið 2022

Þau sem ætla að fermast vorið 2022 í Kópavogskirkju eru beðin um senda tölvupóst (kopavogskirkja@kirkjan.is)  og biðja um skráningarblöð vegna ferminganna fyrir 25. maí, 2021. Síðsumarnámskeið verður 23., 24. og 25. ágúst, 2021 frá kl. 9:00 – 13:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með 6. september, 2021 kl:16:15 – 17:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Tvær kynningarguðsþjónustur og upplýsingafundir verða í: haust (nánar tilkynnt síðar) og 30. janúar 2022 og upplýsingafundir með foreldrum og fermingarbörnum strax á eftir.  Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi í guðþsjónusturnar og á upplýsingafundina.Þann 29. september, 2021 verður farið í dags fermingarfræðsluferð í Vatnaskóg (nánar síðar). Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp) verða (hálfur dagur fyrir áramót og hálfur dagur eftir áramót, tilkynnt síðar). Aukatímar gætu orðið á laugardögum kl. 11:00 ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum.  Það yrði auglýst síðar. Námsgögn (tilkynnt síðar) en fermingarbörn skulu taka skriffæri og stílabók með sér í fræðsluna. Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í safnaðarheimilnum Borgum (sjá: kopavogskirkja.is) er salur til útleigu fyrir fermingarveislur.  Fermingarbörn í Kársnesókn ganga fyrir varðandi bókanir á salnum og verða þær teknar niður (kopavogskirkja@kirkjan.is) af Ástu, djákna safnaðarins eftir 25. maí, 2021 og hafa sóknarbörn Kársnessóknar viku forgang frá þeim tíma.

 

Fermingardagar 2022  verða sem hér segir:

 

  • Sunnudag 3. apríl, 2022, kl. 11:00,

 

  • Pálmasunnudag 10. apríl, 2022, kl.11:00,

 

  • Pálmasunnudag 10. apríl, 2022, kl.13:30, og

  

  • Skírdagur 14. apríl 2022, kl. 11:00

 

Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.

 

Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju, vorið 2022:

 

  • Sunnudag 3. apríl, 2022, kl. 11:00.

Æfingar eru 31. mars og 1. apríl kl. 16:15-17:00.

 

  • Pálmasunnudagur 10. apríl, 2022   11:00.

Æfingar eru 7. og 8. apríl, kl. 16:15-17:00.

 

  • Pálmasunnudagur 10. apríl, 2022   13:30.

Æfingar eru 7. og 8. apríl, kl. 17:00-17:45.

 

  • Skírdagur 14. apríl 2022, kl. 11:00.

Æfingar eru 11. og 12. apríl kl. 10:00-11:00.

 

Helgistund 16. maí n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Helgistund verður í safnaðarheimilinu Borgum sunnudaginn 16. maí n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðstprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.

Helgistund 9. maí kl.11:00

Helgistund verður sunnudaginn 9. maí, kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.

Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina og félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.