Mál dagsins
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirMál dagsins er á hverjum þriðjudegi kl. 14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Í upphafi stjórna Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová samsöng. Um kl. 15:10 er flutt stutt erindi. Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.
Þriðjudaginn 7. október s.l. heimsótti dr. Ari Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík starfið og flutt erindi um Háskóla Íslands.
“Litir ljóssins”
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirSýning Leifs Breiðfjörð “Litir ljóssins” verður opnuð eftir guðsþjónustu 12. október n.k. Guðsþjónustan hefst kl. 11:00. Dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni kl.11:00 en flyst eftir guðsþjónustuupphaf í safnaðarheimilið Borgir. Umsjón með skólanum hafa Bjarmi Hreinsson, Oddur Örn Ólafsson og Ágústa Tryggvadóttir.
Eftir guðsþjónustuna verður sýning Leifs opnuð í Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta 18/05/2025maí 15, 2025 - 10:48 e.h.
- Fermingarfræðsla og fermingar vorið 2026 í Kársnessóknmaí 4, 2025 - 12:50 e.h.
- Skráning í fermingarfræðslu og fermingar 2025-2026maí 4, 2025 - 11:35 f.h.
- Karlakaffi þriðjudaginn 6. maímaí 3, 2025 - 11:21 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurmaí 2, 2025 - 6:00 e.h.