Fermingarfræðsla í Kársnessókn fyrir þau sem fermast vorið 2027

Ferming vorið 202Upplýsingar til þeirra sem skrá sig í fermingarfræðslu í Kópavogskirkju veturinn 2026-7

Skráning mun í fyrst sinn fara fram í gegnum forritið Abler. Opnað verður fyrir skráningar fljótlega og verður það tilkynnt á heimasíðu og samfélagsmiðlum kirkjunnar.

Valið er milli: Síðsumarsnámskeiðs og Vetrarfræðslu:

Síðsumarsnámskeið

Síðsumarsnámskeiðin eru mjög vinsæl hjá okkur. Þau sem klára síðsumarsfræðsluna þurfa ekki að mæta í vikulega vetrarfermingarfræðslu. Síðsumarnámskeiðið verður 19. 20. og 21. ágúst, 2026 frá kl. 9:15-12.15 í safnaðarheimilinu Borgum.

Vetrarfermingarfræðslan

Vetrarfermingarfræðslan verður auglýst síðar en hún hefst í byrjun september og tekur mið af stundaskrá Kárnesskóla.

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp)

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp)

verða fyrir og eftir jól (nánar auglýst síðar). Aukatímar gætu orðið ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum. Það yrði auglýst síðar.

Námsgögn

Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios (Kirkjan lánar) og Kirkjulykill (Kirkjan útvegar þær).  Hægt er að fá Nýja testamentið gefins hjá Kársnessöfnuði og Sálmabókin er lánuð þegar þarf.

Messur

Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að taka með sér „Kirkjulykilinn“ og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni. Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu. Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.  Í messunum og guðsþjónustunum er beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að þau eru á helgum stað.  Beðið eru um að farsímar (snjallsímar) séu ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur, það sé slökkt á þeim. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið.

Fermingarferð

Liður í fermingarfræðslunni er dagsferð. Dagsetning tilkynnt síðar

Foreldrum og fermingarbörnum boðið til messu og fundar 23. ágúst og í janúar (tilkynnt síðar)

Messa og upplýsingafundur fyrir fermingarbörn og foreldra verður núna 23. ágúst 2026 í Kópavogskirkju kl. 11.00. Einnig verður boðið til messu og upplýsingafundar eftir áramót, í janúar 2027 kl.11:00 í Kópavogskirkju og verður dagsetning tilkynnt síðar. Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi.

Upplýsingar um fermingarfræðslu og fermingardaga í Kópavogskirkju 2026-7

 

Fermingardagar vorið 2027 verða sem hér segir:

Sunnudaginn 14. mars, 2027, kl. 11:00

Sunnudaginn 14. Mars 2027, kl. 13.00

Pálmasunnudag 21. mars 2027 kl.11:00

Skírdag 25. mars  2027, kl. 11:00

Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.  Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.

Tímar fermingaræfinga:

  1. apríl kl. 16.15 (fyrir þau sem fermast 14. apríl kl. 11.00)
  2. apríl kl. 17.15 (fyrir þau sem fermast 14. apríl kl. 13.00)
  3. apríl kl. 16.15 (fyrir þau sem fermast 21. apríl kl. 11.00)
  4. apríl kl. 10.00 (fyrir þau sem fermast 25. apríl kl. 11.00)

 

Kópavogskirkja á heimasíðu:

www.kopavogskirkja.is  Þar leitumst við að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti, sem á Facbook og Instragram.

Fermingarfræðslugjald er 26.188kr, skv. Gjaldskrá Prestafélags Íslands. Ef óskað er eftir að greiða gjaldið síðar vinsamlega sendið tölvupóst á netfagnið: kopavogskirkja@kirkjan.is

VIÐ NOTUM FORRITIÐ ABLER í SAMSKIPTUM

Allar upplýsingar varðandi safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.is og á samfélagsmiðlum kirkjunnar.

Jóhannes guðspjallamaður

Sigmar Ó. Maríusson, gullsmiður smíðaði verkið eftir teikingu úr Skarðsbók fyrir sýningu félags íslenskra gullsmiða árið 1982.
Sigmar lést 1. maí síðastliðinn en hann var búsettur á Kársnesi um árabil. Sigrún, Berglaug, Hanna, Þórdís og Áslaug dætur Sigmars færðu Kópavogskirkju verkið nýverið að gjöf og er þeim þakkaður innilega hlýr hugur og velvild í garð kirkjunnar.

Glæsileg gjöf til Kársnessafnaðar og afmælissýning félags áhugafólks um tréskurður

Laugardaginn 25. apríl fæði Stofnun Wilhelms Beckmanns Kársnessöfnuði tvö sófasett Max 1 og Max 2 til eignar og notkunar í safnaðarheimili safnaðarins, sem nefnt er Borgir.  Sófasett þessarar gerðar voru framleidd í Trésmiðjunni Víði á 6-7 áratug 20. aldar og kennd við hönnuð sinn, Max Jeppesen, húsgagnasmíðameistara sem starfaði í Víði um árabil.  Samstarfsmaður hans í Víði, Wilhelm Ernst Beckmann, myndskurðameistari, hannaði og skar út tréverkið.  Max-1 áttu hjónin Hrefna Beckmann og Jón Þór Þórhallsson og höfðu á heimili sínu í Reykjavík.  Stofnun Wilhelms Beckmanns eignaðist settið að þeim látnum.  Max 2- sófasettið færði Ingimundur Sigurpálsson, fyrrverandi forstjóri og bæjarstjóri, Stofnun Wilhelms að gjöf.  Í Borgum eru varðveittar tvær altaristöflur og fleiri útskurðarverk Wilhelms Beckmanns.  Við inngang safnaðarheimilisins stendur verkið „Kona á bæn“ á stalli og er það eina myndmerkið úr steini sem Beckmann gerði á Íslandi.  Loftur Þór Pétursson, bóstari endurnýjaði bæði sófasettinn á árunum 2026-2026 og skilaði glæsilegu verki.  Guðmundur Jóhann Jónsson, formaður sóknarnefndar veitti þessari einstöku gjöf viðtöku fyrir hönd Kársnessafnaðar og þakkaði innilega fyrir góða gjafir og hlýhug til safnaðarins.  Á sama tíma er svo haldin daganna 25-26. apríl 30 ára afmælissýning félags áhugamanna um tréskurð í safnaðarheimilinu.  Aðgangseyrir er enginn og sýningin opin báða dagana frá kl. 11:00-17:00.  Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands á Íslandi heimsótti sýninguna og Beckmannsstofu í safnaðarheimilinu af þessu tilefni.