Heimsókn frá Uganda

Sunnudaginn 14. október kl. 11:00 munu þau Douglas og Thrudy frá Uganda segja frá starfi Hjálparstarfs kirkjunnar í Uganda.  Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Allir hjartanlega velkomnir.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 7. október

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 7. október n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju.  Sunnudagaskólinn tekur þátt í stundinni og félagar úr Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Starf fyrir börn í 1-2 bekk

Vikulega er starf fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Fyrirbænastundir á þriðjudögum kl. 13:45 í safnaðarheimilinu Borgum

Fyrirbænastundir eru á þriðjudögum kl. 13:45 í safnaðarheimilinu Borgum.  Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 2. október

Mál dagsins verður að venju þriðjudaginn 2.okótber frá kl. 14:30-16:00.  Stundin hefst með samsöng frá kl. 14:30-15:10 undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10 segir Gunnar Gylfason frá starfi KSÍ.  Kaffi drukkið kl. 15:30 og stundinni lýkur með bæn og blessun kl. 16:00.  Allir hjartanlega velkomnir.

Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk

Æskulýðsfundir eru fyrir 8. bekk á fimmtudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum.

Guðsþjónusta 30. september kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 30. september kl. 11:00.  Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.

Haustferð

Þriðjudaginn 25. september var safnaðarferð Kársnessóknar. Bessastaðir voru heimsóttir þar sem forseti tók á móti hópnum ásamt samstarfsfólki. Síðan var haldið í Viðistaðakirju þar sem freskur Baltasar voru meðal annars skoðaðar og Hörður Traustason og samstarfsfólk reiddu fram súpu. Sr. Stefán Mar héraðsprestur í Kjalarnesinesprofastsdæmi fræddi um Hafnarfjörð. Síðan var ekið um Krísuvík að Strandakirkju þar sem Guðmundur Brynjólfsson, djákni fræddi um kirkjuna. Þaðan var haldið í kaffi á veitingastaðinn Hafið bláa. Síðan var haldið heim.

Guðsþjónusta 23. september kl. 11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. september kl. 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Peter Máté.  Sunnudagaskólinn að venju kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.

Starf fyrir börn í 1-2 bekk

Kirkjustarf er fyrir börn í 1-2 bekk á miðvikudögum frá kl. 15:30-16:30  í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.  Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðafólk óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Frístund í Kársnesskóla.  Starfið hefst 26. september  n.k.