Skötuveisla Lionsklúbbs Kópavogs til styrktar endurbóta á steindu gleri Gerðar Helgadóttur

Sunnudaginn 16. desember n.k. verður hin árlega skötuveisla Lionsklúbbs Kópavogs.  Að þessu sinni fer veislan fram í safnaðarheimilinu Borgum, sem staðsett er skáhalt gengt Gerðarsafni.  Allur ágóði skötuveislunnar rennur til styrktar endurbóta á steindu gleri Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju.  Allir eru velkomnir og er matur framreiddur frá kl. 11:30-14:00 og 17:30 til 21:00.

Mál dagsins 11. desember n.k.

Mál dagsins 11. desember n.k. hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðrik Kristinssonar.  Klukkan 15:10-15:30 flytur Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður erindi.  Klukkan 15:30 verður boðið upp á kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Jólatónleikar Kórs Kópavogskirkju

Mál dagsins 11. desember kl. 14:30-16:00

Mál dagsins verður þriðjudaginn 11. desember kl.14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Stundin hefst á samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10-15:30 verður flutt erindi.  Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 9. desember kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Guðsþjónusta verður 9. desember kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.

Steindir gluggar Gerðar Helgadóttur

Þessa daganna er unnið að uppsetningu steinds glers Gerðar Helgadóttur á suðurhlið kirkjunnar en glerið hefur verið til viðgerðar í nokkra mánuði hjá Oidtmann glerverkstæðinu í Linnich í Þýskalandi.

Aðventuhlaup í Kópavogi

Hið árlega aðventuhlaup í Kópavogi verður laugardaginn 1. desember og hefst kl.09:00 frá Kópavogskirkju. Hlaupið er í samvinnu við hlaupahóp Breiðabliks. Um er að ræða 7km eða 11 km. Á eftir er boðið upp á hlaupavænar veitingar í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Allir hjartanlega velkomnir.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 2. desember kl. 11:00 og jólaball á eftir.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður 2. desember n.k. kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (ekki í kirkjunni vegna framkvæmda þar). Ásta Ágústsdóttir, djákni leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum. Börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Þóru Marteinsdóttur. Á eftir verður jólaball í safnaðarheimilinu og mun rauðklæddur gestur meðal annars koma í heimsókn. Allir hjartanlega velkomnir.

Helgistund 25. nóvember n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Helgistund verður sunnudaginn 25. nóvember klukkan 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (athugið breyttan stað). Ingimar Helgason, guðfræðingur leiðir stundina. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í stóra sal í safnaðarheimilinu. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 18. nóvember kl. 11.00 (athugið annan messustað)

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 18. nóvember n.k. kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Nú standa yfir endurbætur og viðgerðir í Kópavogskirkju og þess vegna er messað í safnaðarheimilinu. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í kapellu safnaðarheimilisins. Allir hjartanlega velkomnir.