„Tímabil sköpunarverksins“, guðsþjónusta 16. september kl.11:00 í Kópavogskirkju

Uppskeruguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 16. september n.k. kl.11:00 á Degi íslenskrar náttúru. Gerður Magnúsdóttir, leikskólakennari talar um efnið frá sínu hjarta. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Fluttar verða bænir og ritingarlestrar og sungnir sálmar sem tengjast náttúrunni og sköpuninni. Allir hjartanlega velkomnir.

Sunnudagaskólinn 9. september n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Sunnudagaskólinn verður sunnudaginn 9. september kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Góð stund til þess að koma saman með börnunum til að fræðast um Guð og syngja saman. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 9. september n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 9. september kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimlinu Borgum.

Fyrirbænir

Fyrirbænir eru á hverjum þriðjudegi kl. 13:45 í Kópavogskirkju. Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins

Mál dagsins hefur aftur göngu sína í haust, n.k. þriðjudag 4. september kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 er flutt erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.

Vorvísur að hausti

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 2. september, upphaf Sunnudagaskólans

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður 2. september n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju. Sunnudagaskólinn hefur göngu sína aftur eftir sumarfrí. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 26. ágúst kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 26. ágúst n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Fermingarstarfið

Síðsumarnámskeið verður 20. til 22 ágúst, 2018 frá kl. 9:15-13:30 í safnaðarheimilinu Borgum (20. ágúst lýkur fræðslunni kl. 12:10 í stað 13:30). Gott væri að fermingarbörnin kæmu með nesti með sér á hverjum fræðsludegi. Vetrarfermingarfræðsla verður vikulega næsta vetur frá og með september, 2018 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar). Messur kl. 11:00 þann 19. ágúst 2018 og 20. janúar 2019 og fundur með foreldrum eftir messu (messað verður næsta sunnudag það er 19. ágúst í Kópavogskirkju þrátt fyrir viðamiklar endurbætur þar um þessar mundir). Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi ef því verður ekki komið væri vel þegið að einhver fulltrúi þeirra kæmi í staðinn í messu og á fundinn á eftir, sem verður stutter. Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp) verða kynntir í haust.

Messa 19. ágúst n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju

Messa verður í Kópavogskirkju n.k. sunnudag 19. ágúst kl. 11:00. Á eftir guðsþjónustu verður stuttur fundur í kirkjunni um fermingarstarfið framundan. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.