Dagskrá um jól og áramót

23. desember: 11:00 Guðsþjónusta. Dr Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar

24. Des: 15:00 Fjölskyldumessa
4. bekkur úr Kársnesskóla syngur

24. Des: 18:00 Aftansöngur
Ásta Ágústsdóttir  prédikar. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari

25. Des: 14:00 Jóladagur
Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.

25. Des: 15:15 Hátíðarmessa á Sunnuhlíð.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar

31. Des: 18:00 Aftansöngur
Dr. Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari

1. Jan: 14:00 Nýársdagur
Eiríkur Jónsson flytur hugleiðingu. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari.

page1image5256

Útilýsing á Kópavogskirkju og kross á austurhlið.

Þessar vikurnar er unnið við að útlýsingu Kópavogskirkju og lýkur því verki í janúar á næsta ári.  Mánudaginn 17. desember var kross á austurhlið kirkjunnar tekinn niður til viðgerðar og verður svo settur upp við fyrsta tækifæri.

Unglingamessa í Digraneskirkju

Það verður sameiginleg unglingamessa Digranes-, Hjalla- og Kópavogskirkju, í Digraneskirkju 16. desemeber kl 20 og

verður hún með jóla ívafi. Popphljómsveitin Sálmari sér um tónlistina, tveir fermingardrengir lesa jólasögu,

ljóðið Jól eftir Stefán frá Hvítadal lesið og það verða sungin jólalög ásamt fjörugu efni. Séra Bára Friðriksdóttir leiðir stundina.

Þetta er tilvalin jólastund fyrir alla fjölskylduna.

Fyrsta guðsþjónustan eftir endurbætur á steindu gleri Gerðar Helgadóttur á suðurhlið Kópavogskirkju

Fyrsta guðsþjónusta eftir endurbætur á steindu gleri Gerðar Helgadóttur á suðurhlið Kópavogskirkju verður sunnudaginn 16. desember n.k. kl.11:00. Sama dag fyrir 56 árum var Kópavogskirkja vígð. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur mun prédika og þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Matéová. Boðið verður upp á kaffi og piparkökur að lokinni guðsþjónustu og sagt verður frá endurbótunum. Skötuveisla að hætti Lionsklúbbs Kópavogs verður í safnaðarheimilinu Borgum en ágóði af sölunni mun renna til styrktar endurbótanna á verki Gerðar. Allir hjartanlega velkomnir.

Skötuveisla Lionsklúbbs Kópavogs til styrktar endurbóta á steindu gleri Gerðar Helgadóttur

Sunnudaginn 16. desember n.k. verður hin árlega skötuveisla Lionsklúbbs Kópavogs.  Að þessu sinni fer veislan fram í safnaðarheimilinu Borgum, sem staðsett er skáhalt gengt Gerðarsafni.  Allur ágóði skötuveislunnar rennur til styrktar endurbóta á steindu gleri Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju.  Allir eru velkomnir og er matur framreiddur frá kl. 11:30-14:00 og 17:30 til 21:00.

Mál dagsins 11. desember n.k.

Mál dagsins 11. desember n.k. hefst að venju kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðrik Kristinssonar.  Klukkan 15:10-15:30 flytur Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður erindi.  Klukkan 15:30 verður boðið upp á kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Jólatónleikar Kórs Kópavogskirkju

Mál dagsins 11. desember kl. 14:30-16:00

Mál dagsins verður þriðjudaginn 11. desember kl.14:30-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Stundin hefst á samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Klukkan 15:10-15:30 verður flutt erindi.  Klukkan 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 9. desember kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Guðsþjónusta verður 9. desember kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari.  Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.